Markaðurinn
Einföld og fljótleg karamellu ostakaka í glasi
Hver elskar ekki að geta borið fram ljúffenga ostaköku í glasi sem ekki þarf mikla fyrirhöfn. Þessa ostaköku tekur enga stund að útbúa, karamellan en einstaklega góð á móti ostakökunni og stökkum botni með piparkökum og pekanhnetum. Ekkert mál að gera daginn áður.
Innihald
6 skammtar
Botn
130 g piparkökur eða kanilkex
100 g pekanhnetur
50 g smjör
Ostakaka
400 g rjómaostur til matargerðar frá Gott í matinn
150 ml rjómi frá Gott í matinn, þeyttur
1 tsk. vanilludropar
70 ml karamella/karamellusósa, keypt tilbúin
Toppur
karamella
150 ml rjómi frá Gott í matinn, þeyttur
rest af piparköku og pekanhnetu blöndunni
Skref 1
- Setjið piparkökur eða kanilkex í matvinnsluvél og látið hana vinna þar til kexið er orðiðfín malað.
- Grófsaxið pekanhneturnar og blandið þeim saman við.
- Bræðið smjör og hrærið vel saman við.
- Setjið tvær kúfaðar matskeiðar í hvert glas og þjappið vel niður með botni af öðru glasi eða skeið. Setjið í kæli á meðan þið undirbúið ostakökuna.
- Geymið rest til að setja ofan á kökurnar í lokin.
Skref 2
- Þeytið 150 ml af rjóma og setjið til hliðar.
- Setjið rjómaost í hrærivél ásamt sykri, vanilludropum og tilbúinni karamellu og hrærið þar til blandan er orðin mjúk og slétt. Ef karamellan er mjög þykk er gott að setja hana inni í örbylgjuofn 10-15 sekúndur áður en henni er blandað saman við.
- Blandið rjómanum varlega saman við með sleif og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman.
Skref 3
- Best er að setja rjómaostablönduna í sprautupoka og sprauta henni fallega ofan í hvert glas fyrir sig. Setjið ostakökuna inn í ísskáp í 2-4 klst.
- Áður en kakan er borin fram setjið 1-2 msk. af karamellu yfir hvert glas, þreytið restina af rjómanum og sprautið honum ofan á.
- Setjið loks afganginn af piparköku- og pekanhnetublöndunni yfir rjómann.
- Geymist í kæli þar til ostakakan er borin fram.
Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir – gottimatinn.is
-
Markaðurinn4 dagar síðanJóhannes Kristjánsson hefur hafið störf hjá Bako Verslunartækni (BVT)
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanGóð stemning og öflugt fagfólk á fundi Klúbbs Matreiðslumeistara hjá Bako
-
Markaðurinn5 dagar síðanViltu reka kaffihús í hjarta Miðborgarinnar
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanÞessir barir og barþjónar eru tilnefndir til BCA á Íslandi
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 klukkustundir síðanEigandi Sjávarsetursins gagnrýnir harðlega meintan mismun Suðurnesjabæjar á fyrirtækjum
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanGamli Baukur heldur áfram með nýja eigendur og skýra sýn
-
Keppni3 dagar síðanTíu barþjónar tryggja sér sæti í úrslitum Bláa Safírsins
-
Frétt5 dagar síðanÞegar þorrablót ganga í garð. Hvað þarf að hafa í huga varðandi matvælaöryggi?







