Markaðurinn
Ecospíra hlaut hvatningarverðlaun garðyrkjunnar

F.v. Guðríður Helgadóttir forstöðumaður Garðyrkjuskóla Landbúnaðarháskóla Íslands, Katrín H Árndóttir, stofnandi og eigandi Ecospíru og Kristján Þór Júlíusson mennta- og menningaramálaráðherra
Hvatningarverðlaun garðyrkjunnar hlaut Katrín H. Árnadóttir og fyrirtæki hennar, Ecospíra frá Landbúnaðarháskóla Íslands á Sumardaginn fyrsta. Ecospíra framleiðir heilsufæði, byggt á spíruðum fræjum, baunum og korni.
Hér að neðan er rökstuðningur dómnefndar:
Katrín H Árnadóttir stofnandi Ecospíru fær hvatningarverðlaun garðyrkjunnar árið 2017, hún tók við verðlaununum á sumardaginn fyrsta, 20. apríl, úr hendi mennta- og menningarmálaráðherra, Kristjáni Þór Júlíussyni.
Í rökstuðningi dómnefndar segir að Ecospíra sé matvælafyrirtæki sem hefur það að markmiði að framleiða hágæða heilsufæði og smájurtir, byggt á spíruðum fræjum, baunum og korni. Fyrirtækið hefur lífræna vottun og fullt starfsleyfi til matvælaframleiðslu. Ecospíra hefur frá upphafi flokkað allan úrgang í lífrænan úrgang, pappír og plast og er mjög lítill úrgangur frá fyrirtækinu sem ekki er endurnýttur.
Framleiðslan er í Hafnarfirði og fer annars vegar fram í sérstökum spíruvélum þar sem framleiddar eru um 10 mismunandi tegundir af lífrænum spírum á viku og hins vegar í hillukerfi þar sem framleiddar eru margar tegundir af smájurtum (e. Microgreens) fyrir veitingahús. Við spíruframleiðsluna er eingöngu notað sírennandi vatn og ljós. Framleiðslan er í gangi allan ársins hring. Þá er fyrirtækið með vöruþróun í gangi á þurrkuðum spíruðum fræjum og korni í ýmsu formi.
Katrín stofnaði Ecospíru árið 2012. Hvatinn að stofnun fyrirtækisins var reynsla hennar af neyslu græns og spírað fæðis sem leið til bættrar heilsu. Katrín sem er viðskipta- og umhverfisfræðingur, starfaði lengst af við stjórnun og rekstur ásamt kennslu en breytti um stefnu þegar hún kynntist spíruðu fæði og ákvað að hefja framleiðslu á þeim hér á landi.
Spírur og smájurtir frá Ecospíru eru nú í boði í flestum smásöluverslunum, í mötuneytum og í veitingahúsum á Íslandi í dag.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Markaðurinn4 dagar síðan„Súkkulaði og mascarpone reyndust ótrúlega góð blanda“
-
Markaðurinn4 dagar síðanPappírssalan á Stóreldhúsinu 2026
-
Markaðurinn4 dagar síðanHrekkjavöku kökur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanLILJA opnar í Kvosinni: Kristófer og Natalia með nýjan veitingastað
-
Nemendur & nemakeppni7 dagar síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn3 dagar síðanAllt að 55% afsláttur í nóvember
-
Markaðurinn6 dagar síðanLíður að jólum



