Frétt
COVID-19: Hertar samkomutakmarkanir taka gildi 5. október – 20 manna fjöldatakmörkun

Áfram verður eins metra reglan í gildi og grímuskylda þar sem ekki er hægt að tryggja eins metra fjarlægð.
Heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögu sóttvarnalæknis um hertari samfélagslegar aðgerðir til að sporna við útbreiðslu Covid-19. Ný reglugerð þess efnis tekur gildi mánudaginn 5. október og verður birt á morgun.
Stærstu einstöku breytingarnar verða 20 manna fjöldatakmörkun með ákveðnum undantekningum en þar má nefna 50 manna hámark í útförum og 100 manna hámark í tilteknum verslunum. Krám, skemmtistöðum, spilasölum og líkamsræktarstöðvum verður lokað. Sundlaugar verða áfram opnar en með þrengri fjöldatakmörkunum, eða 50% af leyfilegum fjölda samkvæmt starfsleyfi. Ekki verða breytingar á starfsemi leik- og grunnskóla. Í framhalds- og háskólum munu gilda 25 manna fjöldatakmarkanir og er þar miðað við algenga bekkjarstærð. Áfram verður eins metra reglan í gildi og grímuskylda þar sem ekki er hægt að tryggja eins metra fjarlægð. Gerð verður sérstök grein fyrir reglum í íþrótta- og menningarstarfsemi í auglýsingu en ekki verður gert ráð fyrir áhorfendum á íþróttaviðburðum. Starfsemi leikhúsa miðast við 100 manna hólf og grímuskyldu.
Vakin er athygli á því að vikið er frá tillögum sóttvarnalæknis að því leyti að í framhalds- og háskólum verður miðað við 25 manna fjöldatakmörk í stað 20 manna og 50 manna fjöldatakmörk í útförum.
Í
meðfylgjandi minnisblaði sóttvarnalæknis til heilbrigðisráðherra er rakin þróun COVID-19 faraldursins hér á landi að undanförnu. Þar kemur fram að frá 15. september til 1. október hafi um 560 einstaklingar greinst innanlands, daglegur fjöldi nýgreindra verið um 30-40 og hlutfall þeirra sem er í sóttkví verið um 50%. Á sama tíma hafi fjöldi þeirra sem veikst hefur alvarlega aukist og um 20 einstaklingar þurft á sjúkrahúsinnlögn að halda:
„Í ljósi þess að faraldurinn er nú í línulegum vexti og fyrirsjáanlegt er að álag á sjúkrahúskerfið getur farið yfir þolmörk varðandi COVID og önnur verkefni, þá leggur sóttvarnalæknir til að gripið verði til harðari samfélagslegra aðgerða til bæla faraldurinn sem mest niður“
segir meðal annars í
minnisblaði sóttvarnalæknis.
Mynd: úr safni
-
Bocuse d´Or2 dagar síðanBein útsending frá Marseille þar sem Snædís keppir fyrir Íslands hönd
-
Bocuse d´Or24 klukkustundir síðanSnædís komst áfram í úrslit Bocuse d’Or
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanMatarmarkaður Íslands fer fram í Hörpu um helgina
-
Bocuse d´Or1 dagur síðanMyndasyrpa. Snædís skilar réttunum til dómara
-
Bocuse d´Or4 dagar síðanÍslenska Bocuse d’Or liðið klárt í slaginn í Marseille
-
Bocuse d´Or1 dagur síðanFréttavaktin: Snædís keppir í Bocuse d’Or
-
Frétt5 dagar síðanRené Redzepi stígur til hliðar frá Noma eftir ásakanir um ofbeldi gegn starfsfólki
-
Markaðurinn1 dagur síðanHeilsárshótel á Vesturlandi leitar að nýjum hótelstjóra eða rekstraraðila





