Frétt
Cook it raw á Noma – Náttúran í matargerð
|
Ellefu af bestu matreiðslumönnum heimsins komu saman á Noma í Kaupmannahöfn til að elda ekki saman Cook it Raw kvöldið var haldið þann 24.mai síðastliðinn samhliða World Business Summit on Climate Change og var ætlað að vekja athygli á því hvernig hægt væri að elda mat með sem minnstri orku samhliða því að nota hráefni beint frá náttúrinni. Raf-og gasorka er gífurlega kostnaðarsöm og mengandi, því ekki eru allir jafn lánsamir og íslendingar að hafa vatnsfallsorku. Menn leyfðu sér þó að notast við matvinnsluvélar, djúsvélar, töfrasprota og þess háttar. Farið var með allan hópinn daginn áður til Dragsholm á V-Sjálandi til að tína jurtir sem nota skildi kvöldið eftir. 11 matreiðslumenn með 20 michelin-stjörnur sín á milli skriðu á hnjánum í móanum og týndu til það sem til þurfti á meðan að heimamaðurinn René Redzepi leiðbeindi þeim um lyngið.
Boðsgestir voru matreiðslumenn, veitingahúseigendur, blaðamenn og aðrir fagaðilar frá Danmörku og utan úr heimi og var matseðillinn eftirfarandi.
Sérstaklega vöktu athygli réttirnir Pollution 20.30 Modena frá Bottura og Steak Tartar BC frá Davide Scabin. Bottura notast við skötuselslifur, ostrur og skelfisk ásamt strandgróðri, og vekur athygli á mengunarhættunni sem steðjar að æskuslóðum hans. En Scabin einfaldlega reif sundur grófa þræðina úr nautaöxl og bar fram með kavíar. Með öðrum orðum umhverfisvænt eldhús þar sem einungis lágmarks orku er krafist og ætti að fá menn til hugsunar um hvernig draga megi úr orkunotkun í eldúsum og notast við staðbundið hráefni. Myndir: Paul Cunningham |
-
Keppni5 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Markaðurinn5 dagar síðanGarri opnar nýja vefverslun 27. október
-
Markaðurinn4 dagar síðanJólagjöfin sem fær fólk út að njóta
-
Keppni5 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Keppni3 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti vínþjóna í Portúgal
-
Frétt6 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð
-
Markaðurinn2 dagar síðanFerðalag fyrir bragðlaukana
















