Frétt
Bann sett við sölu á grágæs
![Hótel Húsafell](https://veitingageirinn.is/wp-content/uploads/2021/10/hotel-husafell-2016-gae-1024x576.jpg)
Heitreykt gæsabringa
Gæsa og andalæra confit, aðalbláber og bankabygg.
Neytendur sem kaupa unna villibráð þurfa að hafa þetta í huga við sín kaup að tryggja að ekki sé um að ræða vöru unna úr grágæs.
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur undirritað breytingu á reglugerð nr. 456/1994 um fuglaveiðar og nýtingu hlunninda af villtum fuglum. Með breytingunni er óheimilt að bjóða til sölu eða selja grágæs og afurðir hennar. Einnig er óheimilt að flytja hana út. Heimilt er þó að selja uppstoppaða gæs.
Á undanförnum árum hefur grágæsarstofninum hnignað og er sölubann sett fram til að auka líkurnar á að stofninn nái sér á strik á ný. Lagt verður mat á stöðuna að ári liðnu og verði áframhaldandi hnignun á stofninum á þeim tíma verður lengd veiðitímabils grágæsar tekið til skoðunar. Verði hins vegar fjölgun í stofninum verður metið hvort þörf verði á áframhaldandi sölubanni.
Í ljósi umræðu um hvernig eftirliti verði háttað með sölubanninu og ábendinga um að sölubannið muni hafa þau áhrif að grágæs verði seld sem heiðagæs bendir ráðuneytið á að veiðimaður hefur heimild til að selja villibráð sem hann veiðir sjálfur. Villibráðin þarf hins vegar að vera afhent óunnin í hamnum nema viðkomandi aðili hafi leyfi Matvælastofnunar til að verka hana og selja beint til neytenda. Ráðuneytið hvetur þá sem kaupa unna villibráð til að hafa þetta í huga við sín kaup til að tryggja að ekki sé um að ræða vöru unna úr grágæs. Þá er mikilvægt að neytendur séu vel upplýstir um uppruna þeirrar vöru sem þeir kaupa, hvort heldur sem er á veitingastöðum eða í matvöruverslunum.
Unnið er að því að útfæra nánar eftirlit með sölubanninu. Það eftirlit mun meðal annars fela í sér sýnatökur og DNA greiningu.
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra:
„Fækkað hefur í grágæsastofninum á undanförnum árum og við því verður að bregðast. Með sölubanninu nú eru stigin skref til að vernda stofninn, sem vonandi duga til að hann taki við sér á ný og verður staðan metinn á ný að ári liðnu.“
Mynd: úr safni
![](https://veitingageirinn.is/wp-content/uploads/2018/02/veitingageirinn.png)
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðan
Saga barónanna lifir – Veitingahúsið Hornið heldur upp á 46 ára afmæli
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðan
Viðskiptavinir okkar eiga skilið að hafa valkost: Segir Sigurður um ákvörðun MooGoo að vera opinn allt árið
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðan
Ný bylgja í vínheiminum – Fyrsta áfengislausa vínverslunin opnar í hjarta vínborgarinnar Bordeaux
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðan
Hvað er Heitast á BWW 2025? Sóley Björk og fremstu vínsérfræðingar heims afhjúpa leyndardóma Spænskra vína
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðan
Súkkulaðið sem fór á flug á TikTok – Hvað er svona sérstakt við PortaNOIR?
-
Frétt1 dagur síðan
Fuglaflensa veldur eggjaskorti: Veitingastaðir og bakarí í vanda
-
Markaðurinn2 dagar síðan
Rósasalat – Salatið sem fær diskinn til að blómstra – Uppskriftir með rósasalati
-
Keppni2 dagar síðan
Þessir keppendur komust áfram í úrslitakeppni Tipsý og Bulleit