Viðtöl, örfréttir & frumraun
Andri Viceman hefur störf hjá aha.is
Andri Davíð Pétursson aka Viceman framreiðslumeistari og barþjónn hefur hafið störf sem tengiliður veitingastaða hjá aha.is. Hjá aha.is mun Andri vinna náið með þeim veitingastöðum sem þegar eru í samstarfi og sömuleiðis kynna nýjum veitingastöðum fyrir þeim möguleikum sem í boði eru hjá aha.is.
Eins og fjallað hefur verið um hér á veitingageirinn.is þá er Andri með hlaðvarpsþætti Viceman þar sem rætt er við fólk úr veitingabransanum og sömuleiðis verið duglegur að halda pop-up viðburði á hinum og þessum veitingastöðum og börum og mun hann halda því ótrauður áfram.
Hver veit nema að einn daginn verði hægt að kaupa Viceman pop-up á aha tilboði?
„Veitingaþjónustan verður æ stærri hluti af markaðstorginu og því mjög mikilvægt að inn komi sterkur aðili eins og Andri Davíð, sem hefur áralanga reynslu af veitingamarkaðinum á Íslandi“
segir Helgi Már Þórðarson, annar eiganda aha.is
Aha.is er markaðstorg á netinu sem býður upp á fjölbreytta þjónustu fyrir veitingastaði og verslanir og má þar meðal annars nefna frábær tilboð eins og matarupplifun, gistingu eða aðra afþreyingu sem yfir 160 þúsund íslendingar hafa nýtt sér.
Mynd: viceman.is
-
Frétt2 dagar síðanMatreiðslumeistarinn Dóra Svavarsdóttir: Ferðalag skreiðarinnar er umfangsmikið og margbrotið
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanÍsak Aron gefur út matreiðslubókina Bragð
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanSHIRO, NO.17 og ĒN opna í miðborg Reykjavíkur
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanBoðið í ferð fyrir fagfólk í veitingageiranum
-
Keppni6 dagar síðanNegroni hlaupið lífgar upp á Austurvöll
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanHaustborgarinn á Grill 66 er með kóresku „kicki“
-
Markaðurinn6 dagar síðanNathan kynnir nýja virkni sem flýtir fyrir daglegum innkaupum
-
Keppni6 dagar síðanManuel Schembri vann brons fyrir Íslands hönd




