Frétt
Innköllun á Chili jarðhnetum frá Til hamingju
Matvælastofnun varar neytendur sem hafa ofnæmi-eða óþol fyrir soja við Himneskum chili jarðhnetum frá Til hamingju vegna þess að varan er vanmerkt. Varan inniheldur soja sem er ekki merkt á umbúðum. Fyrirtækið Nathan & Olsen hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit í Reykjavík innkalla vöruna.
Innköllunin á einungis við eftirfarandi framleiðslulotur:
- Vörumerki: Til hamingju
- Vöruheiti: Chili jarðhnetur
- Geymsluþol: Best fyrir: 28.02.25, 22.07.25 og 25.09.25
- Strikamerki: 569059092495
- Nettómagn: 150 g
- Framleiðandi: Nathan & Olsen, Klettagörðum 19, 104 Reykjavík
- Framleiðsluland: Ísland
- Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru: Nathan & Olsen, Klettagörðum 19, 104 Reykjavík.
- Dreifing: Hagkaup, Verslunin Blómsturvellir, Verslunin Einar Ólafsson, Pétursbúð, Fjarðarbúðin, Fjarðarkaup, Fríhöfnin, Heimkaup, Hjá Jóhönnu, Hlíðarkaup, Jónsabúð, K.f. V-Húnvetninga, Lyfjabúrið, Melabúðin, Skerjakolla, Skálinn Þorlákshöfn, Smáalind, Verslunin Álfheimar, Verslunin Árborg, Verslunin Ásbyrgi og Verslunin Kassinn
Neytendur sem keypt hafa vöruna og eru með ofnæmi-eða óþol fyrir soja skulu ekki neyta hennar, farga eða skila henni til verslunar eða til fyrirtækisins.
Mynd: mast.is
-
Keppni5 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti vínþjóna í Portúgal
-
Markaðurinn6 dagar síðanJólagjöfin sem fær fólk út að njóta
-
Markaðurinn6 dagar síðanGarri opnar nýja vefverslun 27. október
-
Markaðurinn4 dagar síðanFerðalag fyrir bragðlaukana
-
Frétt3 dagar síðan35 gestir veiktust eftir heimsókn á þriggja Michelin-stjörnu veitingastað
-
Keppni7 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Keppni2 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands verðlaunaður af IBA
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel1 dagur síðanNýr veitingastaður við Skólavörðustíg




