Markaðurinn
Eplakaka með stökkum toppi
Hér er á ferðinni alvöru eplakaka með öllu. Nóg af eplum, kanil, dúnmjúkum botni og stökkum toppi. Dásamleg volg með vanilluís eða rjóma en líka bara mjög góð stofuheit daginn eftir.
400 gr epli, flysjuð og skorin í bita (3-4 epli)
1 msk hveiti
1 msk sykur
2 tsk kanill
150 gr smjör
250 gr sykur
2 egg
1 dós 18% sýrður rjómi frá Gott í matinn
275 gr hveiti
1 tsk lyftiduft
1 tsk matarsódi
½ tsk salt
Ofan á:
100 gr brætt smjör
100 gr sykur
100 gr hveiti
1 tsk kanill
Salt á hnífsoddi
Aðferð:
- Hitið ofn í 170 gr með blæstri. Byrjið á að flysja eplin og skera þau í teninga. Setjið eplin í skál og blandið saman við þau 1 msk hveiti, 1 msk sykri og 2 tsk kanil.
- Þeytið saman í annarri skál, 150 gr smjöri, 250 gr sykri þar til létt og ljós. Bætið eggjunum út í einu í einu og hrærið vel á milli. Bætið sýrða rjómanum út í og blandið vel saman.
- Pískið eða sigtið saman hveiti, lyftidufti, matarsóda og salti og bætið út í smjör og eggjablönduna. Blandið þurrefnunum varlega saman við og hrærið bara þar til allt er rétt komið saman.
- Setjið deigið í smurt bökunarform með bökunarpappír í botninum. Dreifið eplabitunum jafnt yfir allt deigið og þrýstið þeim aðeins ofan í deigið.
- Hrærið saman í skál með gaffli, brædda smjörinu, sykri, hveiti og smá salti þar til mylsna myndast og dreifið þessu yfir kökuna. Gott að hafa bæði stóra klumpa og mylsnu.
- Setjið neðarlega í ofn og bakið í u.þ.b 50 mínútur eða þar til prjóni sem stungið er í miðja köku kemur hreinn upp (gott að athuga eftir 45 mínútur).
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanMyndir: Veislusýning Múlabergs fór fram úr væntingum
-
Nemendur & nemakeppni3 dagar síðanMyndir: Bakaradeildin í Hótel- og matvælaskólanum tók þátt í Tyllidögum
-
Keppni2 dagar síðanSkráning í tvær eftirsóttustu matreiðslukeppnir landsins hafin
-
Frétt3 dagar síðanGrunur um salmonellu í kjúklingalærum frá Stjörnugrís
-
Markaðurinn1 dagur síðanKjúklingabringur í ljúffengri rjóma- og sweet chili sósu
-
Frétt6 dagar síðanReyndir fagmenn skipa nýja stjórn Klúbbs Framreiðslumeistara
-
Food & fun6 dagar síðanÞessir gestakokkar heimsækja Ísland í tilefni Food & Fun
-
Food & fun4 dagar síðanFood & Fun 2026: Allar bókanir fara fram á Dineout í ár







