Vertu memm

Axel Þorsteinsson

Jólagleði hjá Sushi Samba | „… klárlega með bestu sushi stöðum í bænum“

Birting:

þann

Sushi Samba Veitingahús - 2 ára

Það er allt að gerast hjá Sushi Samba eins og alla aðra daga hjá þeim. Jólaseðillinn er kominn í gang og það er seðill sem enginn á að láta fram hjá sér fara. Veitingageirinn.is fékk að upplifa seðilinn og var gaman að sjá hvernig jóla andinn kemur inn í með suðrænum og asískum áhrifum.

Sushi Samba er ný orðið tveggja ára og slóu þeir til heljarinnar veislu og buðu upp á tíu vinsælustu rétti staðarins á klikkuðu verði ásamt fleiri tilboðum, það má segja að það hafi verið dansað fram á kvöld inni á Sushi Samba.

Eins og alltaf er mjög vel tekið á móti manni um leið og inn er komið á staðinn, manni er vísað til borðs og kynntur vín og matseðill staðarins, mikið líf er inni á staðnum og þjónar mjög borsmildir. Allt kvöldið þjónaði Þórdís okkur og ég hef sjaldan fengið jafn góða þjónustu þegar ég fer út að borða.

Orri Páll veitingastjóri staðarins kíkti við og átti nokkur orð við okkur, sagði okkur meðal annars aðeins frá afmælinu sem var haldið 18-19 nóvember og jólaseðlinum sem við vorum að fara gæða okkur á.

Jólaseðillinn byrjaði á Jóla Mojito:

Jóla Mojito

Jóla Mojito

Byrjaði vel, Mojito-ið kom mér í gott jólaskap

Sushi Samba - Brauð

Sushi Samba – Brauð

Tonkabauna grafinn lax, rauðbeðu chips og passion sósa

Tonkabauna grafinn lax, rauðbeðu chips og passion sósa

Ég er mikið fyrir tonkabaunir og laxinn sló alveg í gegn! Passion sósan var öðruvísi en setti jafnvægið á diskinn.

Hægelduð grísasíða, kanil bbq sósa, grísapopp, eplachutney, og bjórbeikon

Hægelduð grísasíða, kanil bbq sósa, grísapopp, eplachutney, og bjórbeikon

Beikonið og eplin voru algjör snilld og grísasíðan fullkomin. Grísa poppið „poppaði“ diskinn vel upp, alls ekkert að þessum disk!

Sushi:
Wasabi yuzu túnfiskur og Hreindýra sushi maki

Sushi Samba er klárlega með bestu sushi stöðum í bænum, ég er mikið fyrir yuzu en fann ekki fyrir því með túnfisknum.

Grenireyktur lambahryggvöðvi, pistasíu kex, saltbakaður perlulaukur og madeirasósa

Grenireyktur lambahryggvöðvi, pistasíu kex, saltbakaður perlulaukur og madeirasósa

Lambið bráðnaði alveg upp í manni og enda fullkomnlega eldað. Ekkert út á þennan disk að setja.

Ris a la mande og hvítsúkkulaði ostakaka, trönuberja sósa þurrkuð hindber og salt karamellu ís

Ris a la mande og hvítsúkkulaði ostakaka, trönuberja sósa þurrkuð hindber og salt karamellu ís

Klárlega fullkominn endir á frábæru kvöldi en til þess að segja einhvað þá mætti vera meiri vanilla í ris a la mande-inu.

Veitingageirinn.is vill óska Sushi samba enn og aftur til hamingju með afmælið og þakkar fyrir frábært kvöld. Topp matur. Topp þjónusta. Topp staður. Takk fyrir mig.

 

/Axel

twitter og instagram icon

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið