Frétt
Minnkuð matarsóun með hentugri heimabrauðgerð – Alþjóðlegur dagur heimabakaðs brauðs í dag 17. nóvember
Matarsóun er óneitanlega alvarlegt vandamál í heiminum en rannsóknir hafa sýnt að um þriðjungur matar sem keyptur er inn á heimili fólks endar í ruslinu! Brauð er ein tegund matar sem helst er hent og það er vegna þess hve fljótt brauð verður þurrt, hart og jafnvel myglað eða óspennandi til átu. Það má auðvitað hægja á þessu með ýmsum rotvarnar- og aukaefnum en það þykir þó betra að komast hjá mikilli inntöku slíkra efna.
Í Evrópuverkefninu FutureKitchen sem Matís leiðir og er styrkt af EIT-Food, sjóði á vegum Evrópusambandsins, hefur áhersla verið lögð á að finna lausnir við þessu vandamáli. Það er meðal annars gert með því að vekja vitund og áhuga ungs fólks á tækninýjungum og nýjum aðferðum sem stuðla að aukinni sjálfbærni á sviði fæðu. Tvær lausnir eru kynntar í þrívíddarmyndbandi sem var gefið út í tengslum við verkefnið, annars vegar heimabrauðgerð og hins vegar snakkframleiðsla úr brauðafgöngum.
Heimabrauðgerð getur minnkað matarsóun brauðs til muna þar sem hún stuðlar að markvissri nýtingu á brauði, með öðrum orðum; fólk býr til brauð heima við þegar það langar í það! Þetta kann þó að taka helst til langan tíma og undirbúning en það vandamál er úr sögunni ef notuð er ný vél sem bakar tortillur eftir eftirspurn, eina í einu svo þú færð volgt og ljúffengt brauð hvenær sem þú vilt.
Tilvalið er líka að gera snakk úr brauð afgöngum og hafa frumkvöðlar í Sviss tekið þetta til sín. Þeir framleiða nú girnilegt snakk úr brauði sem annars færi í ruslið nokkrum klukkutímum eftir bakstur í bakaríum.
Þú getur horft á þrívíddarmyndbandið hér:
Nánari upplýsingar um verkefnið má finna hér.
Mynd: úr safni
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðan„Sorglegt að þetta þurfi að fara á samfélagsmiðla til að borgin vakni“
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanSkráning hafin í Negroni vikuna 2026
-
Frétt6 dagar síðanWilhelm Wessman fallinn frá
-
Keppni2 dagar síðanAlþjóðlegt ævintýri hefst hjá Barþjónaklúbbi Íslands
-
Markaðurinn6 dagar síðanSólmyrkvapylsur frá SS í takmörkuðu upplagi
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanFærri brugghús loka í Bretlandi
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 dagar síðanHvers vegna eru franskar ekki á matseðli Costco?
-
Frétt5 dagar síðanVarað við skordýrum í dilli



