Uppskriftir
Ungversk Gúllassúpa
Fyrir 6 persónur
500 gr nautakjöt (Innralæri) skorið í litla teninga
400 gr bökunarkartöflur
200 gr gulrætur
100 gr laukur
200 gr rauð paprika
4 hvítlauksgeirar
1 tsk kúmen
2 tsk ungversk paprikuduft
800 gr niðursoðnir tómatar
Olía til steikingar
400 ml vatn
Salt og pipar
1 búnt söxuð steinselja
Kjötkraftur
Kjötið er brúnað á pönnu, kryddað og sett í pott með vatninu, ásamt kjötkrafti. Tættum niðursoðnum tómötum er bætt í pottinn og látið sjóða rólega. Skerið lauk, gulrætur og paprika í litla teninga og brúnið létt í olíu á pönnu.
Bætið saman við ásamt kúmeni og söxuðum hvítlauk. Látið sjóða rólega í klukkustund eða þar til kjötið er orðið meirt undir tönn. Afhýðið kartöflurnar og skerið hráar í litla teninga. Sjóðið í lettsöltuðu vatni. Sigtið vatnið frá og setjið kartöflurnar saman við gúllasið rétt áður en hún er borinn fram.
Stráið steinselju yfir og framreiðið með sýrðum rjóma og góðu brauði.
Höfundur: Auðunn Sólberg Valsson matreiðslumeistari.
Mynd: úr einkasafni / Auðunn Sólberg
-
Keppni2 dagar síðanMyndasafn: Litríkur matarmarkaður og logandi stemning á Chilli Festival
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanVerðlaunavín Gyllta Glasið 2026 – Fyrri partur
-
Starfsmannavelta5 dagar síðanLokar dyrunum eftir krefjandi rekstur
-
Markaðurinn6 dagar síðanStálborð á afslætti – fyrstur kemur, fyrstur fær
-
Markaðurinn2 dagar síðanVittorio Agosti frá Fabbri heimsótti Ísland með bragðmiklar nýjungar í samstarfi við ÓJ&K-ÍSAM – Myndir og vídeó
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanLatínó-stemning tekur yfir Kolaportið um helgina
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanMichel Chapoutier heimsækir Ísland og heldur vínkvöld á Eiríksson Brasserie
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel8 klukkustundir síðanReynir Grétarsson opnar Dinner á LYST á Akureyri – „Við viljum hækka standardinn aðeins í mat og þjónustu.“




