Vertu memm

Smári Valtýr Sæbjörnsson

Óverðmerktar vörur í bakaríum

Birting:

þann

Bakarí - Kringla

Neytendastofa gerði könnun dagana 18. – 23. september sl. á ástandi verðmerkinga í 49 bakaríum á höfuðborgarsvæðinu.  Athugað var hvort verðmerkingar væru í lagi í borði, gos- og mjólkurkælum.  Hjá 16 bakaríum (32%) var verðmerkingum ábótavant og voru kælar sérstaklega illa verðmerktir, að því er fram kemur á heimasíðu Neytendastofu.

Stofnunin gerði athugasemdir við:

  • Bakarameistarann Austurveri, Smáratorgi, Suðurveri, Glæsibæ og Húsgagnahöllinni
  • Okkar bakarí Iðnbúð
  • Fjarðarbakarí Búðakór og Borgarholtsbraut
  • Kornið Langarima, Lækjargötu og Hjallabrekku
  • Hús Bakarans Drafnarfelli
  • Bæjarbakarí Bæjarhrauni
  • Kökuhornið Bæjarlind
  • Björnsbakarí Austurströnd
  • Hverafold bakarí

Augljóst er að verðmerkingar í bakaríum eru langt frá því að vera viðunandi og þurfa fyrirtækin að fara vel yfir verðmerkingar og verklag í bakaríum sínum og bregðast fljótt við tilmælum Neytendastofu til að forðast sektir.

Neytendastofa hvetur neytendur til að halda áfram að senda inn ábendingar í gegnum heimasíðu Neytendastofu.

 

Mynd: úr safni

/Smári

twitter og instagram icon

 

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið