Vertu memm

Axel Þorsteinsson

Flott kvöld á dönskum dögum á VOX

Birting:

þann

Jakob Mielcke á léttu spjalli við Axel fréttamann

Jakob Mielcke á léttu spjalli við Axel fréttamann

Í seinasta mánuði stóðu yfir New York dagar í samstarfi við Icelandair á VOX restaurant og þá komu gesta kokkarnir Michael Aeyal Ginor og Douglas Rodiquez til landsins og tóku New york með sér.

Nú er komið að dananum Jakob Mielcke að spreyta sig, þetta er ekki fyrsta skiptið sem Jakob kemur til íslands, hann sló í gegn fyrst árið 2012 þegar hann tók þátt í Food & Fun hátíðinni hér á landi og hefur síðan þá verið mikilvægur hlekkur í að kynna íslenskt hráefni í danmörku.

Ég nota og býð eingöngu upp á Saltverk salt frá Íslandi á veitingastaðnum mínum og fæ oft fleiri kíló af ferskum fiski beint frá Íslandi til að notast við

, segir Jakob í samtali við fréttamann.

Dönsku dagarnir standa yfir fram á sunnudag þar sem Jakob mun standa fremstur og sýna allt það besta sem Kaupmannahöfn hefur upp á að bjóða.

Kvöldið byrjaði á tveimur forréttum frá Vox:

Hrísgrjóna taco með lambahjörtu

Hrísgrjóna taco með lambahjörtu

Flott byrjun

Aðeins í sterkari kantinum en mjög góð fyrir utan það

Fyrsti réttur Hreindýratartar, sýrðir laukar og gerjaður hvítlaukur

Fyrsti réttur
Hreindýratartar, sýrðir laukar og gerjaður hvítlaukur

kunni að meta hreindýrið en vantaði eitthvað til að bíta í

ég er mikill aðdáandi Yusu og sósan sló vel í gegn, bleikjan glæsilega elduð

Þriðji réttur Villt gæs, kóngasveppir í brenndum blaðlauk og ber

Þriðji réttur
Villt gæs, kóngasveppir í brenndum blaðlauk og ber

Þriðji réttur Villt gæs, kóngasveppir í brenndum blaðlauk og ber

Þriðji réttur
Villt gæs, kóngasveppir í brenndum blaðlauk og ber

Gæsin aðeins of seig og vantaði eitthvað crunch með, sem aðalréttur mætti hann vera stærri en annars mjög bragðgóður

Fjórði réttur Seljurót, hvítt súkkulaði, hallsveppir og rauð epli

Fjórði réttur
Seljurót, hvítt súkkulaði, hallsveppir og rauð epli

Fjórði réttur Seljurót, hvítt súkkulaði, hallsveppir og rauð epli

Fjórði réttur
Seljurót, hvítt súkkulaði, hallsveppir og rauð epli

Seljurótin skemmtileg en lítið fór fyrir hallsveppnum, eplin beint úr garðinum frá Jakob og hvítasúkkulaðið gott

Yfir heildina litið var þetta frábært kvöld og glæsileg þjónusta eins og alltaf þegar maður kemur á VOX.  Skammtarnir hefðu mátt vera aðeins stærri en annars flott kvöld í boði VOX og Icelandair.

VOX menn hafa verið duglegir að lífga upp á matarmenningu hér á landi með allskonar gesta kokkum og ég vona að þeir haldi þessari snilld áfram.

 

Myndir: Hinrik

/Axel

twitter og instagram icon

 

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Auglýsingapláss

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið