Uppskriftir
Súkkulaði mousse
Silkimjúkt súkkulaði mousse er fullkominn eftirréttur fyrir hvaða tækifæri sem er. Toppið það með þeyttum rjóma, berjum eða sykruðum hnetum.
Fyrir 4:
Rjómi, 250 ml
Súkkulaði 70%, 50 g
Mjólkursúkkulaði, 50 g
Eggjarauður, 2 stk
Sykur, 2 msk
Vanilludropar, 1 tsk
Kanill, 0,5 tsk
- Skerið súkkulaði gróflega og bræðið í örbylgjuofni. Hitið í 15 sek í einu og hrærið á milli þar til það er full bráðið.
- Setjið eggjarauður, 100 ml af rjóma, 1 msk sykur og vanilludropa í lítinn pott. Stillið á miðlungshita og hrærið þar til blandan er farin að þykkna nógu mikið til að hylja bakið á skeið, 4-5 mín. Varist að láta blönduna sjóða.
- Hrærið vanilludropum, kanil og bráðnu súkkulaði saman við og sigtið blönduna í skál. Leyfið að kólna.
- Þeytið restina af rjómanum með restinni af sykrinum og blandið svo varlega saman við súkkulaðiblönduna. Deilið á milli 4 skála eða glasa, kælið og berið fram með td hindberjum og sykruðum hnetum.
Mynd og höfundur: Snorri Guðmundsson | Matur & Myndir
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanObo diner opnar brátt á Egilsstöðum með nýju yfirbragði
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanReynsluboltar úr veitingageiranum opna kokteilbar á Hverfisgötu
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel19 klukkustundir síðanAtli Snær og Einar Örn opna Chikin á Akureyri
-
Starfsmannavelta7 dagar síðanReksturinn náði ekki nægri veltu
-
Starfsmannavelta6 dagar síðanSt Leonard’s lokar eftir fimm ára rekstur
-
Markaðurinn3 dagar síðanKúmenosturinn er kominn aftur og færir íslenskri matarhefð nýtt líf
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanSticks’n’Sushi fór yfir 18 milljarða króna í veltu
-
Markaðurinn21 klukkustund síðanGarri stækkar vöruúrval sitt fyrir veitingageirann



