Freisting
Café Salonen, Íslendingar í veitingahúsarekstri í Kaupmannahöfn

Ómar Arnarson ásamt unnustu sinni Stine Brangstrup Schou
Á Sankt Peders Stræde í eldri hluta miðborgarinnar í Kaupmannahöfn hefur Íslendingurinn Ómar Arnarson tekið við reksti lítils kaffihúss. Café Salonen er staðsett í kjallara gamallar rakarastofu og var áður rekið af kunningjafólki Ómars.
Staðurinn er frjálslega innréttaður með notuðum húsgögnum keyptum af flóamörkuðum víðsvegar um borgina sem og persónulegum munum í eigu Ómars, það skapar heimilislega og afslappaða stemningu á staðnum.
Ómar segist litlu sem engu hafa breytt eftir að hafa tekið við enda staðurinn rómaður af fastakúnnum sem margir eru háskólanemar en gamli Kaupmannahafnar háskólinn er ofar í götunni. Salonen er opið fyrir matar-og kaffigesti á daginn og fram á kvöld með plötusnúðum um helgar.
Matseðillinn er einfaldur og góður með matarmiklum samlokum úr brauði frá ítölsku bakaríi og léttum tapasréttum að hætti hússins. Salonen eltist ekki Tuborg/Carlsberg stórveldið heldur verslar með drykki frá minni sjálfstæðari brugghúsum, Skovlist og Thisted bryghus. Einnig eru seldir á staðnum lífrænir ávaxtasafar frá Antons Økologiske Saft sem er lítið fyrirtæki á Jótlandi.
Café Salonen er huggulegt lítið kaffihús í hjarta borgarinnar með góðum mat og afslöppuðu andrúmslofti vel þess virði að heimsækja eigi menn leið um gömlu höfuðborgina.

Matseðillinn einfaldur og sækir nöfn í hljóðmiðla fortíðar og nútíðar


Blaðamaður gæddi sér á Grammófón samloku
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanObo diner opnar brátt á Egilsstöðum með nýju yfirbragði
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel22 klukkustundir síðanReynsluboltar úr veitingageiranum opna kokteilbar á Hverfisgötu
-
Markaðurinn6 dagar síðanRekstraraðili óskast fyrir veitingarekstur í Edinborgarhúsinu
-
Starfsmannavelta5 dagar síðanReksturinn náði ekki nægri veltu
-
Starfsmannavelta4 dagar síðanSt Leonard’s lokar eftir fimm ára rekstur
-
Markaðurinn6 dagar síðanGazpacho súpa sem svalar á heitum sumardögum
-
Markaðurinn24 klukkustundir síðanKúmenosturinn er kominn aftur og færir íslenskri matarhefð nýtt líf
-
Frétt7 dagar síðanKaup Dranga á Brauð & Co. undirrituð


