Nemendur & nemakeppni
Útskrift úr Hótel- og matvælaskólanum í MK
Nú er lokið útskriftum á vorönn úr hótel- og matvælaskólanum. Fimmtudaginn 24. maí s.l. útskrifuðust 39 meistarar úr meistaranámi matvælagreina.
Ellefu nemendur útskrifuðust úr framreiðslu, 27 úr matreiðslu og einn nemandi lauk meistaranámi í framreiðslu og matreiðslu.
25. maí var síðan útskrift iðnsveina í matvælagreinum en þar luku 6 nemendur námi í bakstri, 11 nemendur námi í framreiðslu og 32 nemendur námi í matreiðslu og er þar um fjölmennasta hóp í matreiðslu frá því Hótel- og veitingaskóli Íslands flutti í Kópavog.
Ágæt innritun er fyrir haustönnina og er nú að verða fullt í meistaranámið. Unnið verður úr umsóknum fyrir haustönn 2018 í byrjun júní.
Mynd: Baldur Sæmundsson
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel7 dagar síðanArnór Ingi og fjölskylda opna Laut í Norræna húsinu – sjáðu matseðilinn hér
-
Markaðurinn5 dagar síðanVel heppnaður haustfagnaður hjá John Lindsay
-
Markaðurinn2 dagar síðanKomið víða við í heimsókn KAI til Íslands
-
Markaðurinn2 dagar síðanBeittir Hnífar sameinast nýju fyrirtæki – Glóðin veitingavörur tekur til starfa
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanKokkakonur boða til stofnfundar í Bryggjuhúsinu
-
Keppni4 dagar síðanFramúrskarandi hæfileikar verðlaunaðir í Eftirrétti ársins og Konfektmola ársins 2026
-
Keppni3 dagar síðanLisa Dagnäs valin konditor ársins í Svíþjóð 2026
-
Nemendur & nemakeppni6 dagar síðanFramtíðarkokkar láta ljós sitt skína



