Frétt
Ætlar að loka El Bulli í tvö ár
Spænska veitingahúsinu El Bulli, sem hefur margsinnis verið valið það besta í heimi, verður lokað í tvö ár, frá og með 2012. Þetta segir matreiðslumaðurinn Ferran Adria. Hann segist vera orðinn þreyttur auk þess sem hann finni fyrir þörf til að búa til nýjar uppskriftir.
Engar máltíðir verða bornar fram í El Bulli árið 2012 og 2013, segir matreiðslusnillingurinn.
El Bulli er hins vegar ekki að loka. Þetta eru ekki tvö ár í hvíld. Ég þarf tíma til að ákveða hvernig árið 2014 á að vera. Við viljum að 2014 verði framúrskarandi og ég veit að þegar ég sný aftur þá mun það verða öðruvísi.
Í yfirlýsingu, sem er birt á vefsíðu veitingastaðarins ( www.elbulli.com ), kemur fram að árin 2012 og 2013 verði nýtt til að hugsa, skipuleggja nýjungar næstu ára.
El Bulli, sem er á norðausturströnd Spánar, var valinn besti veitingastaður heims í fyrra, en það var fjórða árið í röð sem staðurinn trónir á topp listans yfir 50 bestu veitingastaðina í heiminum.
Greint frá á vef Mbl.is
-
Keppni5 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Markaðurinn5 dagar síðanGarri opnar nýja vefverslun 27. október
-
Markaðurinn4 dagar síðanJólagjöfin sem fær fólk út að njóta
-
Keppni5 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Keppni3 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti vínþjóna í Portúgal
-
Frétt6 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð
-
Markaðurinn3 dagar síðanFerðalag fyrir bragðlaukana




