Freisting
Tandoori – nýr veitingastaður í Skeifunni

Með indverskum blæ eins og nafnið gefur til kynna. Það hefur varla farið fram hjá nokkrum manni indverska sveiflan sem hefur verið í veitingageiranum á þessu ári, og nú á föstudaginn var opnaði einn nýr staður sem fellur undir áðurnefnda sveiflu.
Staðurinn er staðsettur í Skeifunni 11 þar sem útibú Spron var áður til húsa, bjartur og vinalegur staður og ekki spillir staðsetningin fyrir.
Staðurinn gefur sig út fyrir að vera á hollustulínunni og er ekkert um mayonnaise, mettuð fita, msg eða hvítur sykur sé að finna í réttum staðarins.

Hjarta staðarins er sérsmíðaður tandoori pottur þar sem hitinn getur farið í um 400c° og alveg nauðsynlegur við eldamennsku á indverskum og pakistönskum réttum, en uppruna sinn rekur ofninn til norður Indlands.
Verðið er sanngjarnt og má sjá matseðil staðarins á www.tandoori.is
Indverskir matreiðslumenn stjórna eldhúsinu með Samuel Kamran Gill sem yfirmatreiðslumann staðarins.
Heiðurinn að hönnun staðarins eiga þær Hildur Bjarnadóttir arkitekt og Thelma B. Friðriksdóttir innanhúshönnuður.

Eigendur Tandoori eru hjónin Kristinn Vagnsson matreiðslumeistari og Guðný Sigurðardóttir viðskiptafræðingur.
Við á Freisting.is bjóðum veitingastaðnum Tandoori velkominn í veitingaflóru Reykjavíkur með von um bjarta framtíð.



Meðfylgjandi myndir eru frá opnuninni.
-
Keppni10 klukkustundir síðanKosning hafin, hver hlýtur titilinn Kokkur ársins 2026?
-
Keppni23 klukkustundir síðanFimm tryggja sér sæti í úrslitum Kokk ársins eftir harða forkeppni
-
Keppni3 dagar síðanGull og silfur til Íslands á Norðurlandamótinu í matreiðslu – Myndir
-
Frétt3 dagar síðanSvangur þjófur braust inn í Almars bakarí í Hveragerði
-
Markaðurinn3 dagar síðanPáskatilboð sem þú vilt ekki missa af
-
Keppni8 klukkustundir síðanLesendakönnun, hver verður Grænmetiskokkur ársins 2026?
-
Keppni8 klukkustundir síðanFimm keppendur takast á um titilinn Grænmetiskokkur ársins 2026
-
Markaðurinn3 dagar síðanGarri hlýtur hæstu einkunn í BRCGS gæðavottun





