Freisting
Andy Hayler heimsækir Kaupmannahöfn
Andy Hayler, höfundur London Transport Restaurant Guide og matarbloggari heimsótti nýlega Kaupmannahöfn og gerði úttekt á nokkrum michelinstöðum í borginni og birtir á heimasíðu sinni Andy Haylers Restaurant guide. Hayler þessi hefur á síðastliðnum 20 árum heimsótt veitingastaði 3-6 sinnum í viku um allan heim og náði þeim merka áfanga árið 2004 að snæða á öllum þriggja stjörnu Michelin stöðum í heimi.
Hayler notast við einkunnakerfi á skalanum 1-10 frá Good food guide sem er í raun nákvæmur gátlist fremur en vinsældarkosning.
Þannig eru rýnir Haylers að vissu leiti marktækari en aðrar sem eru byggðar á persónulegum smekk. Til glöggvunar segir Hayler 1 stig á þessum skala þýði að veitingastaðurinn sé í raun að fá 991 stig af 1000 stigum, 992/1000 jafngildi 2/10 og svo framvegis því hann fjallar einungis um bestu staðina. 9-10 stig séu því sambærileg þrem Michelin stjörnum, 8 stig séu sambærileg tveimur stjörnum og 5-6 séu sambærileg einni Michelinstjörnu bætir hann við.
Meðan á heimsókn hans stóð kíkti hann á Noma, Kiin Kiin, The Paul og Paustian v/Bo Bech.
Kiin Kiin segir hann lofa mjög góðu sem tilraunakenndur thai staður sem eigi fyllilega skilið stjörnu í Michelin kladdann, annað en margir aðrir thai staðir sem þar eru fyrir.
Paustian segir hann vera traustan einnar stjörnu stað sem og The Paul sem standi ofarlega í einnar stjörnu hópnum.
Einnig er hann hrifinn af Noma sem hann segir stjórnað af færum og hugmyndaríkum matreiðslumanni með skýra sýn á konseptið sem hann segir þó að mörgu leiti heftandi. Það er takmarkað hvað hægt er að gera við gulrætur, lauk og radísur segir Hayler og telur það ástæðu þess að Noma sé ekki enn komið með þriðju Michelin stjörnuna.
Bloggfærsluna má finna hér (flettið niður í ca. miðja grein) sem og rýnirnar um Kaupmannahöfn.
-
Markaðurinn1 dagur síðan
Rótgróið bakarí / verslun og kaffihús til sölu eða leigu
-
Bocuse d´Or19 klukkustundir síðan
Frakkar sigruðu Bocuse d’Or 2025 – Sindri Guðbrandur í 8. sæti
-
Markaðurinn5 dagar síðan
Spennandi tækifæri
-
Bocuse d´Or22 klukkustundir síðan
Sjáðu keppnisrétti Sindra hér – Myndir
-
Bocuse d´Or1 dagur síðan
Sindri Guðbrandur hóf keppni í Bocuse d´Or í morgun – Bein útsending
-
Bocuse d´Or4 dagar síðan
Myndir: Það styttist í herlegheitin – Sindri keppir fyrir Íslands hönd 27. janúar í Bocuse d´Or
-
Bocuse d´Or3 dagar síðan
Sindri keppir í Bocuse d´Or
-
Keppni2 dagar síðan
Daníel Oddsson á Jungle hreppti Bláa Safírinn 2025 – Myndaveisla