Freisting
Leigutaki kærður fyrir eignaspjöll

Lögregla hefur til meðferðar kæru á hendur leigutaka sem leigði húsnæði undir veitingastað sinn í miðborginni. Rétt áður en bera átti hann út vegna vangoldinnar leigu hreinsaði hann allt út úr húsnæðinu og hafði á brott.
Hluti þess var fluttur í annað húsnæði þar sem opna á veitingastað með sama nafni á næstunni. Allt hefur verið tekið úr veitingastaðnum, sem er við Geirsgötu. Samkvæmt leigusamningi átti leigusali fastar innréttingar; naglföst eldhústæki, hurðir, klósett, vaska, fast barborð og sófa ásamt 70 rafmagnsljós. Allt var þetta tekið fyrir um tíu dögum.
Lögreglan rannsakar málið en leigutakarnir munu hafa skuldað 10 milljónir í leigu og talið er að það kosti á þriðja tug milljóna að koma húsnæðinu í samt lag.
Leigutaki vill taka fram að hann innréttaði sjálfur veitingastaðinn og lagði til öll tæki og tól. Fyrir mistök hafi ljós og klósett verið tekin og leigutaki hafi boðist til að skila því. Þá mótmælir hann því að einhver lög hafi verið brotin þótt málið hafi verið kært til lögreglu.
Greint frá á Ruv.is
-
Vín, drykkir og keppni7 dagar síðanSkráning hafin í Negroni vikuna 2026
-
Keppni3 dagar síðanAlþjóðlegt ævintýri hefst hjá Barþjónaklúbbi Íslands
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanFærri brugghús loka í Bretlandi
-
Markaðurinn7 dagar síðanUmhverfisvottuð gæði fyrir hótel og gististaði
-
Frétt6 dagar síðanVarað við skordýrum í dilli
-
Markaðurinn5 dagar síðanIðan fagnar 20 ára afmæli í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum
-
Frétt4 dagar síðanInnihaldsupplýsingar vantar á Krónu pylsur
-
Markaðurinn4 dagar síðanRabarbara trifle með stökku krönsi


