Viðtöl, örfréttir & frumraun
Alþjóðadagur matreiðslumanna
Uppákoma verður haldin í Smáralind, laugardaginn 20. október milli klukkan 13:00 og 15:00, þar sem áhugasömum verður boðið upp á fræðslu og veitingar.
Annars verða góðir gestir hjá KM og Beinvernd nk. laugardag:
Heilbrigðisráðherra og fjölmiðlum verður boðið á uppákomuna.
MS mun baka stóra skyrtertu sem verður í laginu eins og stórt bein.
Á tertunni verður áletrað Beinlínis hollt og lógó KM.
Tertunni verður komið fyrir á neðri hæð Smáralindar fyrir framan Hagkaup.
Staðsetningin hentar vel þar sem gólfpláss er mikið, aðgengi er gott og það sama má segja um flæði um svæðið.
Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra skeri fyrstu sneiðarnar og gefi tveimur börnum, dreng og stúlku.
Þannig undirstrikar ráðherra mikilvægi þess að nauðsynlegt sé að huga að beinheilsu frá unga aldri.
Í Smáralind laugardaginn 20. október klukkan 13:00-15:00
-
Ávarp heilbrigðisráðherra
-
Myndataka þar sem heilbrigðisráðherra sker fyrstu tertusneiðarnar fyrir ungan dreng og stúlku, því næst fær hann sér sjálfur tertusneið.
-
Veitt verða viðtöl við talsmann Beinverndar, dr. Björn Guðbjörnsson og heilbrigðisráðherra.
-
Almenningur fær fría ráðgjöf og fræðslu þar sem aðgengilegir verða bæklingar, fréttabréf og áhættupróf Beinverndar.
Boðsgestir m.a.
-
Formaður heilbrigðisnefndar Alþingis
-
Nefndarmenn í heilbrigðsinefnd
-
Starfsmenn Mjólkursamsölunnar
-
Velunnarar Beinverndar
-
Fagfólk sem kemur að málefnum Beinverndar
-
Framkvæmdastjóri Lýðheilsustöðvar
Fjölmiðlun:
Vegna Beinverndardagsins verða eftirtalin gögn send út:
-
Fréttatilkynningar
-
Ítarefni
-
Bréf til ráðherra
-
Bréf/boðskort til boðsgesta
-
Greinar til birtingar í dagblöðum
-
Viðtöl í ljósvakaþáttum
Félagsmenn í Klúbbi matreiðslumeistara geta lagt okkur lið þessa tvo klukkutíma á morgun laugardag og hjálpað okkur að skera þessa köku.
Áhugasamir geta haft samband við Ingvar Sigurðsson, netfang: [email protected] eða mætt í fullum herklæðum (hvítum kokkajakka og svörtum buxum) á morgun milli 13 & 15.
Fréttatilkynning frá Klúbbi Matreiðslumeistara
-
Markaðurinn2 dagar síðanRekstur og húsnæði til sölu
-
Markaðurinn2 dagar síðanVilja spara fyrirtækjum tíma og kostnað
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanNýtt bakarí opnað á Húsavík eftir nokkurra ára hlé
-
Frétt5 dagar síðanBrotist inn í vinsælt sælkerabakarí í Reykjavík
-
Frétt5 dagar síðanÁttu þessa kokteilsósu? Hún hefur verið innkölluð
-
Vín, drykkir og keppni2 dagar síðanFræðslunámskeið fyrir veitingafólk um framleiðslu, kokteilagerð og klaka
-
Frétt4 dagar síðanStærsti matarviðburður landsins fram undan í Hljómskálagarðinum
-
Frétt2 dagar síðanÁttu þessa Voga ídýfu? Ekki neyta hennar ef þú ert með hveitiofnæmi



