Freisting
Hot Spot á kaffi-, og veitingahúsum heyri sögunni til

Á heimasíðu Litlu frjálsu fréttatofunnar sem ritstýrt er af honum Jóni Axel Ólafssyni er sagt frá því að „Hot spot“ eða heitir reitir komi til með að hætta. Heitir reitir gefur gestum kaffi-, og veitingahúsa aðgang að þráðlausu háhraða internetsambandi þeim að kostnaðalausu.
Eftirfarandi frétt var birt á Litlu frjálsu fréttastofunnar:
Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Símans sagði áðan, í þrumu ræðu á 3G kynningu að Síminn ætlaði að hefja 3G þjónustu 15. ágúst n.k. Síminn stóð fyrir kynningu á fyrirhugaðri þjónustu sinni sem saman stendur af .
Sagði Brynjólfur að s.k. „hot spots“ hjá Símanum (heitir reitir) væru að líða undir lok og nú tæki við ný tegund netþjónustu með tilkomu 3G kerfisins. Þeir sem nota 3G kerfin munu geta verið nettengdir, alltaf allsstaðar um allan bæ.
Síminn er ekki eina félagið sem hyggur á 3G þjónustu en Nova, símafélag Björgólfs Thors er líka að undirbúa 3G þjónustu sína sem verður sambærileg að grunni og þjónusta Símans.
Ekkert heyrist frá Vodafone á Íslandi um þeirra 3G væðingu en lítið hefur farið fyrir uppbyggingu dreifikerfis þeirra, segja þeir sem til þekkja.
Hinsvegar er ljóst að mikil samkeppni er framundan um viðskiptavini milli símafélaganna og með haustinu ætti að færast líf í 3G á Íslandi.
ps. Það var gaman að hlusta á Brynjólf á kynningunni. Hann er öflugur leiðtogi og greinilega vel inn í öllum málum á sviði 3G.
Eins bætir upplýsingafulltrúi Vodafone eftirfarandi í athugasemd fréttarinnar:
Sæll Jón Axel
Fyrst sérstaklega er minnst á Vodafone í þessum pistli vil ég taka fram, að Vodafone mun að sjálfsögðu bjóða upp á 3G þjónustu eins og keppinautar okkar. Reyndar er Vodafone leiðandi í rekstri 3G kerfa í heiminum og okkar viðskiptavinir munu njóta góðs af þeirri miklu reynslu og þekkingu sem hefur orðið til inni í fyrirtækinu frá því 3G voru fyrst tekin í notkun erlendis fyrir nokkrum árum.
Með bestu kveðju,
Hrannar Pétursson
upplýsingafulltrúi Vodafone
-
Keppni6 dagar síðanAlþjóðlegt ævintýri hefst hjá Barþjónaklúbbi Íslands
-
Markaðurinn6 dagar síðanRabarbara trifle með stökku krönsi
-
Markaðurinn2 dagar síðanVönduð JÖNI veltipanna til sölu
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanBig Mamma bætir enn einum staðnum við
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanDiageo fer fyrir dómstóla vegna rommbanns
-
Markaðurinn3 dagar síðanTax Free afsláttur af öllum vörum hjá Ásbirni
-
Markaðurinn3 dagar síðanBetri ráðningar geta dregið úr starfsmannaveltu
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanOpnaði draumabarinn eftir sjö ára velgengni


