Neminn
Frábær árangur MK-Nema í Evrópukeppni Hótel og Ferðamálaskóla

Í dag [þrið. 14 nóv] var formleg athöfn í Menntaskólanum í Kópavogi til að heiðra keppendurna sem tóku þátt í Evrópukeppni Hótel og Ferðamálaskóla fyrir stórkostlegan árangur í keppninni sem haldin var í Killarney á Írlandi. Þess ber að geta að MK hefur fengið 9 sinnum verðlaun í þessari keppni að undanförnum 10 árum.
Nemendur úr Menntaskólanum í Kópavogi sýndu frábæran árangur í árlegri nemakeppni AEHT (Evrópusamtaka hótel og ferðamálaskóla) sem haldin var í Killarney á Írlandi dagana 7.-12. nóvember síðastliðinn og komu heim með tvenn gullverðlaun. Nemakeppnin er liðakeppni þar sem dregnir eru saman þátttakendur frá ólíkum löndum sem síðan spreyta sig á verkefnum tengdum áherslusviðum þeirra í námi.
Að þessu sinni var keppt í kökugerð, gestamóttöku, framreiðslu, barþjónustu, ferðakynningum, matreiðslu, stjórnun, herbergisþjónustu og að auki voru veitt sérstök verðlaun fyrir hreinlæti í umgengi við matvæli.
![]() T.v. Margrét Friðriksdóttir skólameistari, Ragnar Th. Atlason bakaranemi, Íris Jóhannsdóttir nemi á ferðabraut MK |
Íris Jóhannsdóttir, nemi á ferðabraut MK, tók þátt í keppni í ferðakynningum ásamt Danny van der Weel frá Hollandi. Verkefnið að þessu sinni var að fjalla um neikvæð og jákvæð áhrif ferðamennsku á umhverfið í Killarney og koma með tillögur til úrbóta. Farið var með nemendur í kynnisferð um nágrennið og þau fengu síðan einn dag til að undirbúa 20 mínútna kynningu sem flutt var fyrir áhorfendur og dómnefnd. Hlutu þau gullverðlaun fyrir kynninguna sína og silfurverðlaun fyrir að vera eitt af þeim sex liðum sem sýndu besta samvinnu og fagmennsku. Íris fékk einnig gullverðlaun fyrir að vera stigahæsti keppandinn frá sínu landi.
Ragnar Th. Atlason, bakaranemi, keppti í kökugerð ásamt James Dunn frá Írlandi. Verkefni þeirra var að útbúa fjórar tegundir af bakkelsi fyrir síðdegiste, blanda heilsudrykk (smoothie) í tvö glös og svara nokkrum fagtengdum spurningum. Þeir höfðu hálfan dag til að ráða ráðum sínum og ákveða hvað yrði á boðstólum og síðan 3½ klst. til að ljúka verkinu í sérstöku keppniseldhúsi. Fengu þeir gullverðlaun fyrir sitt framlag, sem meðal annars er metið með tilliti til bragðs og útlits, fagmennsku í vinnubrögðum og samvinnu keppenda.
![]() Margrét Friðriksdóttir skólameistari MK fer hér með fögrum orðum um frammistöðu keppenda |
Evrópusamtök hótel og ferðamálaskóla voru stofnuð árið 1988 og voru aðilar þá samtals 24 skólar í 16 Evrópulöndum. Samtökin hafa vaxið jafnt og þétt og nú eru um 320 skólar frá vel yfir 30 löndum í samtökunum. Stór ráðstefna og nemakeppni er haldin í október-nóvember ár hvert og skiptast aðildarlöndin á um að vera gestgjafar.
Frændur okkar Írar stóðu sig frábærlega í allri skipulagninu og bar þátttakendum saman um að sjaldan hefði gætt jafn mikillar fagmennsku við framkvæmd hinna ýmsu keppnisþátta og einmitt nú í ár. Ráðstefnugestir voru 650 talsins þar af 280 nemendur frá 138 skólum í 33 þátttökulöndum.
MK hefur sent nemendur í AEHT keppnina frá því árið 1998 með einstökum árangri sem tekinn er saman í eftirfarandi töflu:
| 1998 | Faro, Portúgal | 1. sæti fyrir eftirrétt |
| 1999 | Diekirch, Lúxemborg | 2. sæti í ferðamálakeppni |
| 2000 | Berlín, Þýskalandi | |
| 2001 | Linz, Austurríki | 1. sæti fyrir eftirrétt |
| 2002 | San Remo, Ítalíu | |
| 2003 | Kaupmannahöfn | 1. sæti fyrir eftirrétt |
| 2004 | Bled, Slóveníu | 1. sæti í ferðamálakeppni |
| 2. sæti fyrir eftirrétt | ||
| 2005 | Antalya, Tyrklandi | 1. sæti í ferðamálakeppni |
| 2006 | Killarney, Írlandi | 1. sæti í ferðamálakeppni |
| 1. sæti í kökugerðarkeppni | ||
Ingólfur Sigurðsson, fagstjóri í bakstri og Ásdís Ó. Vatnsdal, enskukennari hafa lengst af séð um að þjálfa og undirbúa nemendurna fyrir AEHT keppnirnar. Þeim hefur báðum nokkrum sinnum verið boðið sæti í dómnefndum í bakstri/eftirréttagerð og ferðakynningum og var Ingólfur til að mynda yfirdómari í kökugerðarkeppninni nú í Killarney.
Ásdís á einnig sæti í sérstakri nefnd sem hefur það hlutverk að semja og viðhalda keppnisreglum AEHT og sjá um að þeim sé fylgt eftir. Helene H. Pedersen, fagstjóri ferðagreina í MK, er fulltrúi Íslands í framkvæmdaráði AEHT og situr alla fundi þess sem og aðalfund samtakanna.
Verkefni af þessu tagi eru viðamikil og kostnaðarasöm og vart gerleg nema vegna rausnarlegs stuðnings styrktaraðila. Fyrir hönd Menntaskólans í Kópavogi óskar AEHT hópurinn að koma á framfæri innilegu þakklæti til allra þeirra sem greiddu götu hópsins við ferðina til Írlands.
Fréttatilkynning
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanMatarmarkaður Íslands fer fram í Hörpu um helgina
-
Bocuse d´Or2 dagar síðanÍslenska Bocuse d’Or liðið klárt í slaginn í Marseille
-
Frétt3 dagar síðanRené Redzepi stígur til hliðar frá Noma eftir ásakanir um ofbeldi gegn starfsfólki
-
Bocuse d´Or10 klukkustundir síðanBein útsending frá Marseille þar sem Snædís keppir fyrir Íslands hönd
-
Markaðurinn6 dagar síðanKvöld sem koníaksunnendur bíða eftir
-
Frétt4 dagar síðanGrunur um salmonellu í nautahakki og hamborgurum frá Ferskum kjötvörum
-
Keppni2 dagar síðanSara Rós sigraði í Whitley Neill kokteilakeppninni
-
Markaðurinn5 dagar síðanVinsælustu pizzaáleggin á Íslandi







