Freisting
Fiskirí hátíð, dagana 15-17 sept.
Fiskirí er hátíð á vegum sjávarútvegsráðuneytisins í samstarfi við Klúbb matreiðslumeistara á Íslandi. Slegið verður upp viðamikilli fiskiveislu á um 80 veitingastöðum landsins helgina 15.-17. september 2006 og er ætlunin að hvetja bæði unga og aldna til að fara út að snæða sjávarafurðir meðan á hátíðinni stendur.
Öllum veitingastöðum landsins var boðin þátttaka og var þátttaka vonum framar. Þátttakendur munu leggja áherslu á fisk- og sjávarrétti en hver og einn veitingastaður getur ákveðið hvers konar réttir verða í boði.
Tímasetningin á hátíðinni er valin með tilliti til þess að dregið hefur úr straumi ferðamanna að hausti og því verður þetta eins konar framlenging á háannatímanum. Samkvæmt
heimildum heimasíðu KM, þá mun klúbbfélagar bjóða upp á fiskisúpu næstkomandi fimmtudag, 14. september á Laugarveginum. Farið verður frá Hlemmi kl. 16:00 og endað á Lækjartorgi um 17-17.30 og þar verður bláskel sett á heysátu og eldur borinn að, þannig að hún eldast í eigin safa og tekur jafnframt í sig smá reykbragð. Þess ber að geta að kokkalandsliðið kemur til með að elda fyrir fjölmiðlafólk á blaðamannafundi á morgun þriðjudaginn 12 september en kokkalandsliðið mun kynna forréttin sem verður á Heimsbikarmótinu í Lux í Nóvember 2007.
Gefinn verður út lítil sjávarréttamatreiðslubók með fljótlegum og góðum uppskriftum og mun bókinni verða dreift til útskriftarárgangs framhaldsskóla landsins. Helstu styrktaraðilar hátíðarinnar eru sjávarútvegsráðuneytið, Landssamband íslenskra útvegsmanna, Fiskisaga, Vísa Íslands, Glitnir og Landssamband smábátaeiganda.
Heimasíða Fiskirí: www.fiskiri.is
-
Keppni4 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Keppni4 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Keppni7 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Markaðurinn3 dagar síðanGarri opnar nýja vefverslun 27. október
-
Frétt5 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Markaðurinn3 dagar síðanJólagjöfin sem fær fólk út að njóta
-
Nemendur & nemakeppni6 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð



