Vertu memm

Freisting

Matreiðslumaður Ársins og Global Chef Challenge

Birting:

þann

Forkeppni fyrir keppnina um Matreiðslumann ársins 2007 og val á keppenda Íslands í Global CHEF Challenge, sem er ný keppni á vegum WACS Alheimssamtaka matreiðslumanna.

Global CHEF Challenge er heimskeppni sem fer þannig fram;

  • Hvert land velur sinn keppenda sem keppir við aðrar þjóðir úr sinni heimsálfu.
  • Þar sem í  Evrópu er helmingur aðildarþjóða WACS þá er Evrópu skipt
    upp í norður-mið og suður.
  • Þar er Ísland ásamt 15 öðrum þjóðum í norður Evrópu og mun keppnin milli þeirra fara fram í Tallinn í Eistlandi 31. okt. til 4. nóv. 2007.

www.globalchef.org

Sigurvegari þar keppir síðan fyrir hönd norður-Evrópu við hinar heimsálfunar í úrslitum GCC sem fara fram samhliða alheimsþingi WACS 12.-15. maí í Dubai 2008.
www.wacs2008.com

Í þessari forkeppni eru það þeir fimm efstu sem komast í úrslit Matreiðslumanns Ársins sem verður haldin í október 2007 á Akureyri, sigurvegari í forkeppninni verður fulltrúi Íslands í GCC.

Keppnin verður með markaðs körfu fyrirkomulagi (mistery basket) sem verður kynnt keppendum degi fyrir keppni.

Elda þarf fjögra rétta kvöldverð fyrir átta,  forrétt, millirétt, aðalrétt og eftirrétt og hafa keppendur fimm tíma til undirbúnings fram að afgreiðslu forréttar síðan er að lágmarki 35 mín. á milli rétta ( ræðst af fjölda keppenda).

Vægi dóma er eftirfarandi:
Mis en place og hreinlæti         10 stig
Fagleg vinnubrögð og nýting    20 stig
Framsetning                            30 stig
Bragð                                     40 stig

Auglýsingapláss

Fimm dómarar (þrír erlendir og tveir Íslenskir) dæma framsetningu og bragð og veður það blindsmakk.
Eldhúsdómarar verða tveir (Íslenskir)

Keppendum verður úthlutað aðstoðarmönnum (nemar úr Hótel og matvælaskólanum)

Nánar um keppnina hér (Pdf) og hér (Pdf)

Greint frá á heimasíðu KM

[email protected]

Auglýsingapláss

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Click to comment

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið