Smári Valtýr Sæbjörnsson
Ferskir straumar frá Svíþjóð á Mikkeller & Friends Reykjavík
Eitt af ferskari brugghúsum Norðurlanda tekur yfir dælurnar á Mikkeller & Friends Reykjavík.
Næstkomandi föstudag, 16. október, mun Mikkeller & Friends Reykjavík á Hverfisgötu 12 blása til sannkallaðrar bjór veislu þar sem sænska „sígauna“ brugghúsið Omnipollo verður í aðalhlutverki. Á krana verða átta bjórar frá sænska dúóinu sem vakið hefur mikla lukku í heimi handverksbjóra.
Omnipollo var stofnað 2011 af Henok Fentie og Karl Grandin. Henok var afar efnilegur heimabruggari og Karl hönnuður sem m.a. er frægur fyrir að vera annar af stofnendum Cheap Monday fatamerkisins. Líkt og Mikkeller eru þeir félagar svo kallað „sígauna“ (gypsy) brugghús en í eðli orðsins felst að þeir eiga ekki brugghús en brugga þá bjór sinn í brugghúsum sem þeir treysta til. Omnipollo hefur fengið mikið lof fyrir frábæra bjóra, þá aðallega í IPA- , stout- og súrum bjór stílum. Einnig hafa þeir fengið verðskuldaða athygli fyrir hönnun en mögnuð grafík frá Karl Grandin prýðir allar flöskur þeirra.
Til merkis um að frægðarsól þeirra má nefna að á þessu ári stofnuðu þeir sitt eigið veitingahús í Stokkhólmi, Omnipollos Hat, sem sérhæfir sig í pizzagerð og bjór. Einnig hafa þeir prýtt Ratebeer Top 100 yfir bestu bruggara í heimi.
Nokkrir af allra bestu bjórum Omnipollo verða á krana á föstudaginn og má þar nefna Bianca Mongo Lassi Gose, Fatamorgana Double IPA, Pecan Mud Stout, Fruit Tap 2 Lemonade Pale Ale og Ice Cream Pale Ale svo eitthvað sé nefnt.
Það er klárt mál að það verður að hætta vinnu snemma á föstudaginn!
Myndir: aðsendar
-
Keppni5 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Keppni4 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Markaðurinn4 dagar síðanGarri opnar nýja vefverslun 27. október
-
Markaðurinn3 dagar síðanJólagjöfin sem fær fólk út að njóta
-
Keppni3 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti vínþjóna í Portúgal
-
Frétt5 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð
-
Nemendur & nemakeppni6 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði





