Markaðurinn
ISO vottunin í höfn
Það tekur alltaf tíma að fá staðfestingu á svona vottunum. Þetta þarf að samþykkja hjá höfuðstöðvunum erlendis þar sem við erum með alþjóðlegan vottunaraðila,
segir Eðvald Valgarðsson gæðastjóri Kjarnafæðis.
Fyrirtækið hefur eftir mikla vinnu hlotið þessa vottun sem Eðvald segir fyrirtækinu mjög dýrmæt.
Þetta virkar þannig að við erum með okkar eigið ISO númer eða FM 636401, en FM númerið staðfestir þá sem hafa farið gegnum allt ISO úttektarferlið. Nú hefst markaðssetning á þessari vottun, bæði hér innanlands og utan. Við erum fyrsta og eina matvælafyrirtækið á Íslandi með áherslu á kjötvörur sem hefur þessa vottun. Það sýnir bara metnað og vilja hjá okkur að standa okkur vel á erfiðum samkeppnismarkaði. Það er mikill lærdómur að fara þessa vegferð sem svona vottunarferli er og við höfum lært að hlusta betur á viðskiptavininn og einnig að nýta okkur skilaboð frá viðskiptavinum, bæði mötuneytum, verslunum og einstaklingum. Við lifum jú á að vörurnar okkar seljist og líki vel,
segir Eðvald.
Hér má sjá slóð á
„vottunina“
Fyrri frétt Kjarnafæðis um málið má lesa með því að smella hér.
-
Markaðurinn4 dagar síðanNetflix-stjarnan Juan Gutierrez með pop-up á Lava við Bláa Lónið
-
Markaðurinn4 dagar síðanFullt var út úr dyrum á pylsugerðarnámskeiði landsliðs kjötiðnaðarmanna – Myndir – Iðan fræðslusetur
-
Starfsmannavelta4 dagar síðanTómlegt um að litast í Iðunni mathöll á Akureyri
-
Markaðurinn3 dagar síðanFersk íslensk bláskel í allt sumar
-
Frétt2 dagar síðanLaunahækkanir skila sér í næstu útborgun
-
Keppni2 dagar síðanFyrsta pítsakeppni á Íslandi haldin með þátttöku fremstu pítsubakara landsins
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanHeimsklassa gestakokkar á MATEY í maí
-
Markaðurinn3 dagar síðanYfirkokkur/Verkstjóri óskast




