Frétt
Eldur kom upp í eldhúsi Sigló hótel
Um hádegisbilið í gær kom upp mikill eldur í nýbyggðu eldhúsi veitingarstaðarins Sunnu sem er hluti af hinu nýja og glæsilega Sigló hótel á Siglufirði.
Fumlaus viðbrögð starfsfólks urðu til þess að betur fór en á horfðist. Hótelið opnaði fyrir aðeins viku síðan en Róbert Guðfinnsson athafnamaður segir stefnt að því að koma eldhúsinu í lag fyrir verslunarmannahelgi, að því er fram kemur á mbl.is.
Einn starfsmaður slasaðist á höndum við að reyna hindra útbreiðslu eldsins og var fluttur á sjúkrahúsið en hann mun ekki vera alvarlega slasaður, segir í frétt á siglo.is.
Eldurinn kom upp í nýjum steikarpotti sem tekinn var í notkun í gærmorgun. Róbert segir í viðtali við mbl.is að eitthvað; galla í pottinum eða mistök, hafa orðið til þess að hann ofhitnaði og það kviknar í feiti. Eldurinn læsti sig í eitthvað fleira en pottinn og rúður sprungu en aðallega var um að ræða reykskemmdir, að sögn Róberts.
Meðfylgjandi mynd tók Jón Ólafur Björgvinsson fréttamaður á siglo.is. Fleiri myndir er hægt að skoða á vef siglo.is með því að smella hér.
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanNýr veitingastaður opnar í Mosfellsbæ
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun9 klukkustundir síðanÍslenskur matreiðslumaður fær Michelin-viðurkenningu fyrir nýjan veitingastað í Vilníus
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanSjaldgæft vínsafn Stalíns fer á uppboð í Georgíu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanSteinunn og Sæþór fagna 25 ára afmæli Narfeyrarstofu
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanTrump í vínstríði við dyggan stuðningsmann
-
Frétt1 dagur síðanMatvælasjóður hefur veitt 3,7 milljarða í styrki frá 2020



