Hinrik Carl Ellertsson
Frábær upplifun í sveitasælunni
Eftir 2 daga af Food and Fun geðveiki var tími til kominn að yfirgefa vík reykjanna og halda austur fyrir fjall, nánar til tekið á Hótel Laka sem staðsett er á bænum Efri vík, 4 km frá Kirkjubæjarklaustri. Hótelið er með 40 herbergi, auk 12 smáhýsa rétt fyrir aftan hótelið ásamt því að vera með 9 holu golfvöll fyrir utan.
Ég hafði gert boð á undan mér og renndi í hlað um 19:30 á föstudagskveldi. Þar tók hótelstýran og yfirkokkur kvöldsins Eva Björk Harðardóttir á móti okkur fjölskyldunni með miklum hlýindum og lét mig fá herbergislykil og bauð okkur að ganga til matar þegar okkur hentaði, sem ég gerði fljótlega.
Þegar á veitingarstaðinn var komið blasti við mér mikið magn af áhugaverðum verkum eftir Guðrúnu Kristjánsdóttur sem gaf staðnum íslenskan blæ á skemmtilegan hátt. Verkin juku á hlýleika staðarins sem á sama tíma hefur nútímalegt yfirbragð. Það má segja að það sé lýsandi fyrir hótelið, allt mjög hlýlegt en samt svo fágað. Okkur var því næst vísað til sætis.
Hafði ekki setið lengi þegar komið var með brauðkörfuna sem var greinilega nýbakað brauð og ekkert aðkeypt á þessum bæ, setti þetta tóninn fyrir kvöldið.
Þá kom forrétturinn sem var sveitapaté að hætti Evu ásamt nýbakaðri eggjaköku, borið fram með salati og smá sultu ásamt bakaðri parmigiano flögu. Þessi réttur var alveg magnaður, maður fann alla ástina sem hafði verið lögð í þetta og ekkert gervi í þessu, áferðin á patéinu var hreint frábær og eggjakakan vel stökk og bragðið alveg upp á 10.
Því næst var komið að aðalréttinum:
Grilluð kjúklingabringa með rósmarínbökuðu rótargrænmeti og hvítvínssósu. Skar í bringuna og aldrei á minni ævi hef ég fengið jafn mjúka og vel steikta kjúklingabringu, fullkomlega krydduð og sósan passaði yndislega með.
Því næst var komið að eftirréttinum:
Frönsk súkkulaðikaka með heimalöguðum bláberjaís, mintu og smá rjómatopp. Þarna kom punkturinn yfir i-ið, kakan vel blaut, ísinn alveg frábær, bláberin komu vel í gegn og áferðin á ísnum alveg silkimjúk.
Frábær endir á enn betra kvöldi, saddur og glaður gekk ég til náða og hlakkaði mikið til morgunmatarins.
Vaknaði um 8 leytið var kominn í morgunmatinn um 8:30 og yfirbryti og faðir Evu stóð vaktina.
Hef ég nú gist á fjöldanum öllum af hótelum bæði hérlendis og erlendis, en nú verð ég að segja að metnaðurinn sem lagður er í þennan morgunmat, sama hvort það var heimalagaða kæfan, nýsteikta beikonið, vöffludegið sem beið bara eftir því að láta steikja sig eða hafragrauturinn sem ég tel að sé sá besti sem ég hef smakkað. Þessi morgunmatur hefði sómað sér vel á 5 stjörnu hóteli í New York. Hreint fullkomið.
Eftir dvöl mína á Hótel Laka komst ég að þeirri skemmtilegu niðurstöðu að það er hægt að fá frábæran mat á fleiri stöðum heldur en bara í 101, því þó að maður sé staddur á 880 Kirkubæjarklaustur er hægt að hitta á fólk sem hefur svo gaman af því sem það er að gera og er greinilega létt klikkað á að fá þá hugmynd að reka hótel af þessari stærðargráðu svo langt frá Reykjavíkinni að það er ekki annað hægt heldur en að dást að því. Enn og aftur vil ég þakka fyrir mig og mína, og get ég lofað því að þetta verður ekki í það síðasta skipti sem ég á eftir að leggja leið mína á þennan fallega stað þar sem það sýnir sig að persónuleg þjónusta, fagmennska í starfi og bjartsýni getur komið fólki langt.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanNotað Og Nýtt – Facebook hópur til að selja/kaupa notuð eða ný tæki
-
Frétt3 dagar síðanUPPFÆRT: Vagninn fundinn! Matarvagni stolið á meðan eigendur tóku á móti nýfæddri dóttur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanNýr kafli í miðborginni, Gamla Reykjavík tekin til starfa
-
Markaðurinn6 dagar síðanSegðu skilið við viðbrenndan grjónagraut í eitt skipti fyrir öll og prófaðu þessa aðferð
-
Keppni3 dagar síðanDublin Meets Reykjavík: Tíu barþjónar mætast í úrslitum í kvöld – Sjáðu myndirnar frá undankeppninni
-
Keppni13 klukkustundir síðanÞessir barþjónar komust áfram í Whitley Neill kokteilakeppninni sem fram mun fara hjá Innnes
-
Markaðurinn2 dagar síðanMorgunverður í aðalhlutverki þegar Innnes býður í opið hús 19. mars
-
Bocuse d´Or1 dagur síðan„Draumurinn hefur alltaf verið að keppa í þessari keppni,“ segir Snædís
































