Vertu memm

Vín, drykkir og keppni

ÁTVR tekur upp heimsendingar

Birting:

þann

Bakó Ísberg - Vínbúð - Heiðrún

Vínbúðin Heiðrún

Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins (ÁTVR) hefur tekið upp nýja þjónustu þar sem viðskiptavinum býðst að fá vörur úr Vefbúð Vínbúðanna sendar heim að dyrum. Þjónustan hófst í dag, mánudaginn 23. nóvember, og er ætlað að auðvelda landsmönnum aðgang að fjölbreyttara vöruúrvali, óháð búsetu.

ÁTVR hefur boðið viðskiptavinum að panta vörur úr verslunum Vínbúðanna frá árinu 2000 og úr Vefbúðinni frá árinu 2009. Með nýju þjónustunni er stigið enn eitt skrefið í þróun verslunarinnar.

Fjölbreyttara úrval óháð búsetu

Í tilkynningu á heimasíðu ÁTVR kemur fram að vöruúrval Vefbúðarinnar sé mun meira en það sem finna má í einstökum Vínbúðum. Með heimsendingu sé stefnt að því að jafna aðgengi landsmanna að þessu úrvali án þess að slaka á kröfum um ábyrga sölu og þjónustu.

Heimsendingar geta meðal annars komið sér vel fyrir þá sem búa langt frá næstu Vínbúð, auk þess sem þjónustan getur verið hentug þegar panta þarf meira magn, til dæmis fyrir veislur og aðra viðburði.

Þá bendir ÁTVR á að nýja fyrirkomulagið skapi einnig aukin tækifæri fyrir birgja til að koma á framfæri vörum sem ekki eru fáanlegar í hillum Vínbúðanna.

Pósturinn sér um heimsendingar

Pósturinn annast dreifingu pantana og greiða viðskiptavinir fyrir heimsendinguna samkvæmt gjaldskrá fyrirtækisins.

Áætlaður afhendingartími er að jafnaði einn til þrír dagar, en ekki verður boðið upp á afhendingu samdægurs.

Viðskiptavinir geta jafnframt áfram valið að fá pantanir úr Vefbúðinni sendar í Vínbúðir um allt land án aukakostnaðar.

Rafræn auðkenning við kaup og afhendingu

ÁTVR leggur áherslu á að öryggi og ábyrgð séu tryggð við sölu og afhendingu áfengis.

Við kaup í Vefbúðinni þurfa viðskiptavinir að auðkenna sig með rafrænum skilríkjum og verður sama krafa gerð þegar pöntunin er afhent.

Með þessu fyrirkomulagi vill ÁTVR tryggja að 20 ára aldurstakmark sé virt og að sala og afhending fari fram í samræmi við þær kröfur sem gerðar eru til starfsemi fyrirtækisins.

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Auglýsingapláss

Vínkjallarinn

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:

Mest lesið