Keppni
París 1920 í aðalhlutverki í árlegum keppnum Garra
Garri heldur keppnirnar Eftirréttur ársins og Konfektmoli ársins fimmtudaginn 5. nóvember á sýningunni Stóreldhúsið í Laugardalshöll.
Eftirréttur ársins og Konfektmoli ársins: Í fyrstu verðlaun er eftirréttanámskeið hjá Cacao Barry, nánari upplýsingar verða birtar síðar.
Nemaverðlaun: 50.000 kr. úttekt hjá Garra.
Keppnisrétt hafa þau sem lokið hafa sveinsprófi í matreiðslu, konditori og bakaraiðn eða eru á nemasamningi í fyrrnefndum greinum. Undantekningartilvik eru metin sérstaklega.
Þema ársins er París 1920.
Skylduhráefni
Súkkulaði frá Cacao Barry:
Cacao Barry Mi-Amére 58%: Djúpt dökkt súkkulaði með mildum ristuðum kakótónum og fíngerðum, örlítið súrum jurtakenndum undirtón.
Val er á milli tvegga púrra frá Capfruit:
Capfruit Apríkósu Puré: Púrran er framleidd úr Bergeron-apríkósum frá Rhône-dalnum í Frakklandi, afbrigði sem er sérstaklega metið í sætabrauðsgerð fyrir náttúrulegt jafnvægi milli sætu og sýru. Apríkósurnar hafa ríkan ilm, fallegan appelsínugulan lit og hreint ávaxtabragð sem nýtur sín vel í eftirréttum þar sem ferskleiki og áferð skipta máli.
EÐA:
Capfruit Grænepla Puré: Ávaxtapúrra úr grænum „Granny Smith“ eplum sem býður upp á einstaklega ferskt og svalandi bragð, með léttum sýrðum tónum og fallegum ljósgrænum pastelblæ. Eplin eru ræktuð aðeins nokkra kílómetra frá vinnslustöð Capfruit, í hlíðum Rhône-dalsins í Frakklandi.
Notkun á súkkulaði eða púrrum frá öðrum framleiðendum er ekki leyfileg í keppninni.
Skráning
Skráning fyrir Efirréttur ársins 2026
Skráning fyrir Konfektmoli ársins 2026
Grunnhráefnispakki til æfinga fylgir skráningu og greiðsla á 5.000 kr. staðfestingargjaldi. Gjaldið endurgreiðist þeim sem mæta samkvæmt tímaplani á keppnisstað. Staðfestingargjald skal leggja inn á reikning: 0301-26-000817; kt. 670892-2129.
Skráningarfrestur er til og með 20. október 2026.
Nánari upplýsingar og vægi matsatriða fyrir Eftirréttur ársins
Nánari upplýsingar og vægi matsatriða fyrir Konfektmoli ársins
Nánari upplýsingar veitir Silja í síma 858-3023 eða [email protected]
-
Áhugavert3 dagar síðanMyndir: Hálf öld frá útskrift úr Hótel- og veitingaskólanum
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanMyndir frá 30 ára afmælishátíð Hótel- og matvælaskólans
-
Markaðurinn7 dagar síðanFastagesturinn verður sífellt mikilvægari
-
Keppni3 dagar síðanJanus kom, sá og sigraði í sinni fyrstu keppni
-
Frétt2 dagar síðanVeitingastaðurinn Strikið rýmdur eftir að eldur kom upp
-
Markaðurinn5 dagar síðanGlútenlausar vörur í stóreldhúsið
-
Markaðurinn6 dagar síðanAllt að 47 prósenta afsláttur í september
-
Frétt5 dagar síðanRannsókn á alvarlegu E. coli-hópsmiti enn ólokið




