Vertu memm

Frétt

Vöxtur í veitingarekstri Jamie Oliver

Birting:

þann

Jamie Oliver

Jamie Oliver

Tekjur af veitingastöðum Jamie Oliver Group jukust á síðasta ári þrátt fyrir að heildartekjur samstæðunnar hafi dregist lítillega saman. Hagnaður fyrir skatta nær helmingaðist, meðal annars vegna kostnaðar við endurskipulagningu og opnun nýs matreiðsluskóla í London.

The Guardian greinir frá því að heildartekjur Jamie Oliver Group hafi numið 28,4 milljónum punda árið 2025, jafnvirði um 4,7 milljarða íslenskra króna. Árið áður námu tekjurnar 28,6 milljónum punda.

Tekjur af veitingastöðum í eigu og rekstri samstæðunnar jukust hins vegar um tæp 17 prósent, úr 3,7 milljónum punda í 4,3 milljónir, eða sem nemur rúmlega 710 milljónum íslenskra króna.

Tekjur af sérleyfisrekstri jukust jafnframt úr 3,8 milljónum punda í 4,1 milljón, jafnvirði um 678 milljóna króna.

Mikill vöxtur hjá matreiðsluskólunum

Jamie Oliver

The Jamie Oliver Cookery School í London, þar sem boðið er upp á fjölbreytt matreiðslunámskeið undir merkjum Jamie Oliver.

Matreiðsluskólar Jamie Oliver í London skiluðu einnig töluvert meiri tekjum en árið áður. Tekjur þeirra jukust úr einni milljón punda í 1,6 milljónir, sem jafngildir um 264 milljónum íslenskra króna.

Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði, skatta og afskriftir, að undanskildum sérstökum kostnaðarliðum, jókst úr 4,6 milljónum punda í 5,1 milljón. Samstæðan segir hagræðingu í rekstri og lægri rekstrarkostnað hafa átt stóran þátt í þeirri aukningu.

Á móti lækkuðu tekjur af höfundarlaunum, leyfissamningum og meðmælasamningum úr 17,7 milljónum punda í 15,9 milljónir. Sá tekjuliður er enn sá stærsti í starfsemi samstæðunnar.

Mikill samdráttur í hagnaði

Þrátt fyrir auknar tekjur af veitingastöðum og matreiðsluskólum lækkaði hagnaður fyrir skatta úr 2,4 milljónum punda í um 1,25 milljónir, eða úr tæplega 397 milljónum íslenskra króna í um 207 milljónir.

Samstæðan færði 1,46 milljónir punda til gjalda vegna endurskipulagningar, þar á meðal vegna starfsmannakostnaðar og sérfræðiráðgjafar. Um 20 störf voru lögð niður hjá fjölmiðlateymi fyrirtækisins.

Kostnaður vegna undirbúnings og opnunar nýs Jamie Oliver-matreiðsluskóla í John Lewis-versluninni við Oxford Street í London hafði einnig áhrif á afkomuna. Skólinn tók til starfa í maí 2025.

Jamie Oliver og eiginkona hans, Jools Oliver, fengu greiddar 1,5 milljónir punda í arð, jafnvirði um 248 milljóna íslenskra króna. Arðgreiðslan lækkaði um meira en 40 prósent frá fyrra ári þegar þau fengu 2,5 milljónir punda.

Stefnt að frekari fjölgun staða

Jamie Oliver

Jamie Oliver Catherine Street í Covent Garden í London opnaði undir lok árs 2023 og markaði endurkomu Jamie Oliver á breskan veitingamarkað.
Mynd: Skjáskot af jamieolivercatherinest.com.

Jamie Oliver sneri aftur á breskan veitingamarkað með opnun Jamie Oliver Catherine Street í Covent Garden í London undir lok árs 2023.

Jamie’s Italian var síðan endurvakið í Bretlandi í samstarfi við Brava Hospitality Group, eiganda Prezzo, og nýr staður opnaður á Leicester Square í mars á þessu ári. Forsvarsmenn Brava hafa sagt tækifæri vera til að fjölga stöðunum í allt að 40.

Einnig er stefnt að því að opna um tíu nýja sérleyfisstaði undir merkjum Jamie Oliver víða um heim á árinu. Staðir hafa þegar verið opnaðir í Abu Dhabi, Barein og á Indlandi.

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Auglýsingapláss

Vínkjallarinn

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:

Mest lesið