Freisting
29 punda hótel og B5 í sveiflu
Á heimasíðu Jónasar Kristjánssonar fyrrverandi veitingagagnrýnanda er hægt að lesa um opnun á nýju hóteli í London, þar sem nóttin kostar aðeins 58 pund (7,600 ísl kr.) og fagnar að loksins sé komið hótelverð af viti í London. Einnig segir hann frá reynslu sinni á veitngastaðnum B5. Hér að neðan er hægt að lesa hans greinar:
29 punda hótel
Samlokukóngurinn Sinclair Beecham er að opna hótel rétt norðan við City í London, þar sem nóttin á að kosta 59 pund. Þar á símtalsmínútan ekki að kosta 2 pund, heldur 2 pens. Þar á Mars-stöngin ekki að kosta 2 pund, heldur sama og úti í búð.
Þægindi eru hin sömu á hótelherbergjunum og menn eru vanir, netsamband er frítt og kaffi sömuleiðis. Tom Robbins sagði í gær í Observer, að herbergin væru bæði stór og fín. Hótelið heitir Hoxton, síminn er 020 75450 1000, vefsíðan www.hoxtonhotels.com. Það verður opnað á föstudaginn. Þá verður loksins komið hótelverð af viti í London.
Úrval smárétta
B5 sveiflast eftir tímum dagsins milli kaffistofu, matstofu og vínstofu, því að öll vín eru þar seld í glasatali. Sjá má sýnishorn af ýmsum þrúgum og heimshornum. Sérstaða matseðilsins felst í miklu safni smárétta, sem fást allan daginn. Þar fyrir utan eru hádegisseðill og kvöldseðill.
Svona staðir eru lausir við yfirlæti frönsku og fínu staðanna með svimandi upphæðum á matseðli. Hér má borða þríréttað fyrir 3.300 krónur í hádeginu og 4.500 krónur á kvöldin. Smáréttirnir kosta um það bil 1.000 krónur, til dæmis ljúfur graflax á rússneskri pönnsu. Til hamingju!
Heimild: jonas.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanFimm fagmenn, eitt kvöld og einstök matarupplifun
-
Markaðurinn2 dagar síðanNetflix-stjarnan Juan Gutierrez með pop-up á Lava við Bláa Lónið
-
Markaðurinn2 dagar síðanFullt var út úr dyrum á pylsugerðarnámskeiði landsliðs kjötiðnaðarmanna – Myndir – Iðan fræðslusetur
-
Starfsmannavelta2 dagar síðanTómlegt um að litast í Iðunni mathöll á Akureyri
-
Markaðurinn1 dagur síðanFersk íslensk bláskel í allt sumar
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanBransa kvöld á Sumac á sunnudag
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanHeimsklassa gestakokkar á MATEY í maí
-
Markaðurinn5 dagar síðanIðan flytur tímabundið starfsemi sína að Stórhöfða



