Markaðurinn
Wolt og Krambúðin keyra snarlið og matvörurnar heim
Verslanakeðjan Krambúðin hefur hafið samstarf við heimsendingarþjónustuna Wolt um að senda matvörur og snarl heim að dyrum. Heimsendingarþjónustan hefur verið brautryðjandi í heimsendingu á Íslandi en hefur samstarfið við Krambúðina aukið enn fremur þá þjónustu sem Wolt býður upp á.
Fyrsta verslun Krambúðarinnar hóf sendingar með Wolt í maí á þessu ári, en frá því í júlí hafa allar 15 verslanirnar á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri, í Reykjanesbæ og á Selfossi hafið heimsendingar. Krambúðin býður upp á 2.600 til 2.900 mismunandi vörur en lögð var áhersla á að bjóða upp á fjölbreytt úrval sem viðskiptavinir gætu þurft í heimsendingu.
„Það er frábært tækifæri fyrir okkur að vinna með Krambúðinni. Við erum spennt að þróa samstarfið með þeim til að auka þjónustuframboðið á Íslandi.
Krambúðin er traust vörumerki með sterka nærveru í samfélaginu og fjölbreytt vöruúrval sem mun auka verulega þægindin sem við bjóðum viðskiptavinum okkar upp á,“
segir Jóhann Már Helgason, forstöðumaður viðskiptasviðs Wolt á Íslandi.
„Við hlökkum til áframhaldandi samstarfs með Wolt…“
Ólíkt öðrum matvöruverslunum á netinu eru pantanir Krambúðarinnar afgreiddar frá verslun á staðnum. Þannig er afhentingartíminn styttur enn frekar og viðskiptavinir þurfa vanalega ekki að bíða meira en 30 mínútur eftir sendingunni. Samstarfinu er ætlað að gera dagleg innkaup hraðvirkari og auðveldari fyrir neytendur og gera þeim kleift að nálgast sömu hágæða vörur sem til eru í verslun án þess að þurfa að fara út fyrir hússins dyr.
Í gegnum Wolt appið geta viðskiptavinir skoðað fjölbreytt vöruúrval Krambúðarinnar, lagt inn pöntun og fengið hana afhenta á um 30 mínútum, eftir staðsetningu.
„Þetta samstarf hefur gengið mjög vel og í raun farið fram úr okkar björtustu vonum. Við erum stolt af því að vera fyrsta þægindaverslunin á Íslandi sem býður upp á þessa þjónustu í gegnum Wolt og það er greinilegt að markaðurinn hefur beðið eftir þessu.
Við hlökkum til áframhaldandi samstarfs með Wolt og að geta boðið viðskiptavinum okkar upp á enn meiri þægindi í framtíðinni,“
segir Kristín Gunnarsdóttir, rekstrarstjóri Krambúðarinnar og Kjörbúðarinnar.
Vinsælustu vörur Krambúðarinnar á Wolt
Samkvæmt tölum fyrstu mánaðanna er hvíti Monster Energy Ultra orkudrykkurinn vinsælasta staka varan og drykkir og snakk meðal vinsælustu vöruflokkanna, ásamt kjötbollum frá 1944, en vinsælustu vörur Krambúðarinnar á Wolt eru:
Monster Energy Ultra hvítur
Nýmjólk
Pepsi Max
Red Bull
Maltese
Powerade
1944 Kjötbollur
Lambi salernispappír
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðan
100 myndir frá hátíðarkvöldverði KM
-
Keppni5 dagar síðan
Þessir veitingastaðir og Íslendingar eru tilnefndir til BCA 2025 – Myndaveisla
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðan
Fyrsta heildstæða kennsluefnið í matreiðslu gefið út eftir 70 ára kennslusögu – Myndir frá útgáfuteitinu
-
Markaðurinn4 dagar síðan
Uppskrift – Rjómalöguð tómatsúpa og grillað ostabrauð
-
Nemendur & nemakeppni3 dagar síðan
Reynir Grétarsson matreiðslumeistari með áhugavert fræðsluerindi um súkkulaðigerð – Myndir
-
Markaðurinn3 dagar síðan
Uppskrift – Mozzarella fiskréttur
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðan
Hótel og heilsulind Bláa Lónsins á meðal 10 bestu hótelum heims – Michelin
-
Markaðurinn1 dagur síðan
Bóndadagsgjöf ástríðukokksins