Markaðurinn
Vinnustaðanám í sumar
IÐAN fræðslusetur tekur þátt í átaksverkefni stjórnvalda sem miðar að því að fjölga tækifærum fyrir iðnnema sem eru án námssamnings að komast í vinnustaðanám í sumar.
Markmiðið með átaksverkefninu er að hvetja fyrirtæki til að taka viðbótarnema og þar með fjölga nemum í vinnustaðanámi.
Úrræði stjórnvalda er tímabundið og gildir frá 15. maí til 15. september 2021. Hverjum nema fylgir styrkur sem nemur launum skv. kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags auk mótframlags í lífeyrissjóð. Fyrirtæki greiða önnur launatengd gjöld s.s. orlof, í sjúkrasjóð, tryggingagjald, orlofsheimilasjóð og Virk.
Þessa dagana er IÐAN að kanna áhuga hjá fyrirtækjum að taka þátt í þessu átaksverkefni. Ef þitt fyrirtæki hefur áhuga að taka þátt þá er næsta skref að fylla út þetta form.
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanArnór Ingi stefnir hátt með Laut – opnar fyrir kvöldverð á morgun
-
Vín, drykkir og keppni7 dagar síðanEin lélegasta vínuppskera í þrjá áratugi
-
Markaðurinn4 dagar síðanSpennandi starf fyrir yfirmatreiðslumann í Stykkishólmi
-
Markaðurinn4 dagar síðanVillibráðarpaté með landsliði kjötiðnaðarmanna
-
Markaðurinn5 dagar síðanBakarameistari Bakels heimsækir Ísland og heldur bakaranámskeið
-
Keppni5 dagar síðanStyttist í stóru stundina hjá Kokkalandsliði Íslands
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanEin máltíð sem breytti öllu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanÁhugaverð grein um fagmennsku í veitingarekstri



