Vertu memm

Frétt

Veitingamenn dæmdir í þriggja ára atvinnurekstrarbann

Birting:

þann

Veitingamenn dæmdir í þriggja ára atvinnurekstrarbann

Mynd tekin þegar stéttarfélagið Efling stóð fyrir mótmælum fyrir utan veitingastaðinn Ítalíu á Frakkastíg árið 2024 vegna meintra brota á réttindum starfsfólks.
Mynd: efling.is

Rekstraraðilar veitingastaðarins Ítalíu hafa verið dæmdir í þriggja ára atvinnurekstrarbann. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stéttarfélaginu Eflingu.

Þeir Elvar Ingimarsson og Björgvin Narfi Ásgeirsson, fyrrum eigendur rekstrarfélagsins Ítalgest ehf., voru dæmdir í atvinnurekstrarbann í Héraðsdómi Reykjavíkur 12. janúar síðastliðinn. Landsréttur hefur nú staðfest þann dóm.

Samkvæmt tilkynningu Eflingar hóf félagið aðgerðir vegna meints launaþjófnaðar, misnotkunar og brota á réttindum starfsfólks á veitingastaðnum Ítalíu og fleiri stöðum sem þeir félagar ráku í september árið 2024. Þá safnaði félagið vitnisburðum starfsfólks og gögnum sem bentu til alvarlegra brota á réttindum verkafólks, sem vöktu talsverða fjölmiðlaumfjöllun.

Rekstrarfélagið Ítalgest ehf. var úrskurðað gjaldþrota 9. október 2024. Samkvæmt gögnum þrotabúsins námu kröfur í búið um 116 milljónum króna en nær engar eignir fundust.

Í tilkynningu Eflingar segir að dómurinn og staðfesting Landsréttar sýni að rekstur félagsins hafi einkennst af alvarlegum brotum, meðal annars með óútskýrðum greiðslum úr félaginu á persónulega reikninga eigenda og tengdra aðila.

Efling segir niðurstöðuna mikilvæga og telur að dómurinn sýni að brot gegn starfsfólki í veitingarekstri hafi afleiðingar.

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Vínkjallarinn

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið