Vín, drykkir og keppni
Úrslit: Heimsmeistarakeppni Vínþjóna
Dagurinn var langur en stressið fór að magnast fyrst eftir kl 15°°, morguninn var varin í prófi um vatn og um Syrah/Shiraz, afgreitt á klukkutíma. Svo fengu menn að slappa af og sumir snéru rauðir úr þeirri afslöppun því sólin er komin aftur.
Allir voru kallaðir á svið kl; 16°° og svo var byrjað að kalla þá sem náðu ekki í úrslit niður af sviðinu. 4 urðu eftir sem áttu langt og strangt verkefni framundan:
-
Gérard Basset, mjög reyndur Frakki sem er búinn að vera búsettur í Englandi í áraraðir
-
Paolo Basso, Svisslendingurinn sem hefur einnig langa reynslu og rætur í Toskana
-
Eric Zwiebel, franskur sommelier í Alsace
-
Andreas Larsson, sænskur sommelier, ráðgjafi
Fyrst voru 4 vín og 12 sterk vín smökkuð og merkilegt nokk voru ekki allir mjög sammála, nema um nokkrar tegundir.
Svo tók þjónustuverkefnið við:
Sviðsett var fyrsta kvöldið á nýopnu veitingahúsi á Rhodos, og keppendur þurftu að þjóna eftirréttavín á einu borði, bjóða víni með ákveðnu matseðli, leiðrétta vínseðil sem var fullur af villum, umhella flösku af víni fyrir gesti og þjóna þriðja borðið með kampavíni. Þeir áttu einnig að nota og stjórna sem best nema sem var þeim til aðstoðar.
Basset átti salinn, lipur fagmaður og frábær fyrir viðskiptavinina, Paolo Basso var fagmaður í gegn, Eric Zwiegel var mjög stressaður en einstaklega góður fagmaður, Andreas Larsson gerði allt sem hann var beðinn um að gera. En brekkudómararnir telja víst eins og alltaf fyrir lítið og í hléinu áður en tilkynnt var um sigurvegarann var rætt og veðjað. Paolo Baso virðist eiga flest atkvæða brekkudómaranna, en…
Andreas Larsson vann keppnina.
Skandínavíu hefur eignast sinn annan sommelier heimsmeistara. Svíarnir grétu. Gérard Basset grét, en af öðru þá getur hann þó farið heim ánægður, hann vann vatns- og shirazkeppnirnar báðar!
Við óskum Andreas til hamingju, þessi titill á sennilega eftir að gera margt fyrir vínþjóna á Norðurlöndum og hann er greinilega búinn að loka sig af í nokkur ár og árangurinn lét sig ekki vanta.
Þetta er búið að vera frábær reynsla, mikið af góðum mönnum hér og tengslanetið hefur stækkað sem um munar, en þetta er einstakt nesti fyrir framtíðina. Núna er galadinner og á morgun eldsnemma verður flogið heim í einum áfanga.
Höfundur: Dominique frá Rhodos, Sunnudagskvöld 20. maí
-
Markaðurinn5 dagar síðan
Rótgróið bakarí / verslun og kaffihús til sölu eða leigu
-
Bocuse d´Or4 dagar síðan
Frakkar sigruðu Bocuse d’Or 2025 – Sindri Guðbrandur í 8. sæti
-
Bocuse d´Or4 dagar síðan
Sjáðu keppnisrétti Sindra hér – Myndir
-
Starfsmannavelta2 dagar síðan
Snædís Xyza Mae Jónsdóttir ráðin yfirmatreiðslumeistari á Fröken Reykjavík Kitchen & Bar
-
Bocuse d´Or5 dagar síðan
Sindri Guðbrandur hóf keppni í Bocuse d´Or í morgun – Bein útsending
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðan
Glæsilegt Þorrablót Íslendinga á Gran Canaria – Kristján Frederiksen matreiðslmeistari fór á kostum – Myndir
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun12 klukkustundir síðan
Lúxus á útsölu – Fairmont Grand Hotel selur innanstokksmuni fyrir breytingar – Talið vera stærsta uppboð sinnar tegundar í Evrópu
-
Keppni1 dagur síðan
Ashley Marriot vann Barlady keppnina á Íslandi – Myndir