Pistlar
Þórir Erlingsson: „Árið hefur að mörgu leiti verið merkilegt….“
Nú þegar styttist í áramót er gott að líta til baka yfir árið og velta fyrir sér framtíðinni. Árið hefur að mörgu leiti verið merkilegt, Klúbbur Matreiðslumeistara varð fimmtíu ára í febrúar en sökum Covid takmarkana var ekki haldið uppá afmælið fyrr en í september.
Að hugsa þessi fimmtíu ár til baka inná Naustið þegar Ib Wessman ásamt Sverri Þorlákssyni, Stefáni Hjaltested, Hauki Hjaltasyni, Hilmari B. Jónssyni, Karli Finnbogasyni, Kristjáni Sæmundsyni, Braga Ingasyni, Hafsteinni Gilssyni, Jóni Sigurðsyni, Tómasi Guðnasyni, Gústafi Guðmundssyni, Harrý Kjærnested og Páli Ingimarssyni stofnuð KM (sjá hér) held ég að þeir félagar hafi ekki gert sér grein fyrir því hversu mikil áhrif stofnun KM myndi hafa í dag fimmtíu árum seinna. Þessum félögum ásamt öllum þeim sem eftir hafa komið ber að þakka fyrir þeirra starf í þágu KM. Takk öll.
Að venju var mikið um að vera hjá KM árið 2023, Kokkur ársins var haldin í IKEA þetta árið og hlaut Rúnar Pierre Heriveaux nafnbótina Kokkur ársins 2022 (sjá hér).
Einnig fóru keppendur á vegum KM til Danmerkur og tóku þátt í norðurlandamóti í matreiðslu (sjá hér). Allir okkar keppendur stóðu sig með mikilli prýði en Gabríel Kristinn Bjarnason hlaut nafnbótina Ungkokkur norðurlandana 2022 en í keppninni um Matreiðslumann norðurlandana varð Sindri Guðbrandur Sigurðsson í öðru sæti. Að þessu sinni var keppt í nýrri keppni um Grænmetiskokk Norðurlandana en þar náðu Sveinn Steinsson og Aþena Þöll Gunnarsdóttir öðru sætinu og er þetta besti samanlagði árangur Íslands á norðurlandamóti hingað til.
Í lok nóvember fór Kokkalandsliðið til Lúxemborg og keppti á Heimsmeistaramótinu í matreiðslu. Liðið stóð sig frábærlega lenti í sjötta sæti í heildastigakeppninni með eitt gull og eitt silfur aðeins 1,47 stigum frá öðru sætinu (sjá hér). Það var alveg frábært að fylgjast með þessum hóp, samvinnan, samstaðan og metnaðurinn skein svo í gegn að eftir var tekið að öðrum þjóðum.
Á árinu 2023 liggja líka fyrir okkur spennandi verkefni, Hátíðarkvöldverður KM verður haldin nú 7. janúar á Hilton hótel Nordica í fyrsta skipti síðan 2020. Kokkur ársins verður haldin í IKEA í byrjun apríl og svo munum við taka þátt í Norðurlandmóti og Norðurlandaþingi í Hell í Noregi í byrjun júní.
Undirbúningur fyrir Ólympíuleikana sem fara fram í Stuttgart í ársbyrjun 2024 mun einnig lita starf ársins 2023.
Félagsfundir voru nokkrir á árinu og var mæting mjög góð nú á haustmánuðum (sjá hér), fundir verða mánaðarlega árið 2023 fyrir utan sumarmánuðina þar sem við tökum okkur frí. Ég hvet félaga til að vera duglega að mæta á fundi. Að hitta gamla og nýja félaga með saman áhugamál er alltaf skemmtilegt.
Kæru lesendur ég óska ykkur gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.
Þórir Erlingsson
Forseti Klúbbs matreiðslumeistara

-
Markaðurinn3 dagar síðan
Veitingastaður á Arnarstapa til sölu – einstakt tækifæri í töfrandi umhverfi
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel1 dagur síðan
Nýr kafli í Fiskbúð Fjallabyggðar – veitingastaður tekur við af fiskborðinu
-
Starfsmannavelta5 dagar síðan
Harry tekur við rekstri Nauthóls – Tómas og Sigrún kveðja eftir níu dásamleg ár
-
Keppni2 dagar síðan
Uppfært: Brauðtertukeppni fagmanna frestað
-
Starfsmannavelta4 dagar síðan
Nýr veitingastjóri á Strikinu – Elísabet Ingibjörg tekur við keflinu
-
Markaðurinn1 dagur síðan
Opnunartími Innnes yfir páskahátíðina
-
Frétt3 dagar síðan
Hilton Nordica og Reykjavík Natura fá nýjan rekstraraðila og andlitslyftingu
-
Markaðurinn1 dagur síðan
Gabríel Kristinn – Kokkur ársins 2025 – leiðir þig í gegnum fullkomna páskamáltíð