Smári Valtýr Sæbjörnsson
Slippurinn poppar upp á Apótekinu
Matreiðslumeistarinn Gísli Matthías Auðunsson verður í broddi fylkingar á veitingastaðnum Apótekinu dagana 24. – 28. janúar næstkomandi.
Þá daga verður veitingahúsið Slippurinn í Vestmannaeyjum með svokallað Pop Up event og sérstakur margrétta matseðill að hætti Gísla á staðnum. Bergdís Örlygsdóttir, einn eigenda Apóteksins, segir uppátækið spennandi og að það sé um að gera að brjóta aðeins upp stemninguna fyrir gesti og starfsfólk staðarins á nýju ári.
„Gísli er auðvitað mjög fær á sínu sviði þannig að við vitum vel að þetta verður frábær upplifun.“
Sagði Bergdís.
Matseðillinn er á þessa leið:
- ÞARAFLÖGUR með loðnuhrognum & sýrðum rjóma
- HARÐFISKFLÖGUR með brenndu smjör & söl
- GRAFIÐ FOLALD, geitaostur & jarðskokkar
- LETURHUMAR með sjótrufflum, smjörsósu & þurrkuðum tómötum
- ÞORSK KLUMBRA, gerjuð skessujurt & kjúklingagljái
- LAMB, geymdur rabbabari, seljurót, heslinhnetur & timían
EFTIRRÉTTIR
- SKYR, hafrar & blóðbergskrap
- MJÓLKURSÚKKULAÐI, kerfilsís, súrmjólkurfroða & lakkríssalt

Gísli bauð upp á þorsk klumbru á Hátíðarkvöldverði Klúbbs Matreiðslumeistara.
Þetta sagði Gísli um réttinn; „Þorsk klumbra er vöðvi aftan við hausinn. Hann er snyrtur, grafinn, brenndur og gljáður með hunangi, hvönn og beltisþara. Svo er stökkur brauðraspur með blóðbergi og sítrónutimían. Kremið er lagað úr gerjaðri hvönn og skessujurtarolíu og gljáin á disknum úr kjúklingasoði, villisveppum, hvannarfræjum og vel af smjöri.
Pop Up eventið er ein af mörgum skemmtilegum uppákomum sem starfsfólk Apóteksins stendur fyrir á nýju ári en hin vinsælu kokteilanámskeið staðarins eru aftur komin á fullt.
„Þar sjá margverðlaunaðir kokteilabarþjónar okkar um að kenna áhugasömum nemendum að búa til ýmsa kokteila og að para þá með góðum mat. Kokteilar gera oft góðan mat og skemmtilega stemningu enn betri þannig að þessi námskeið hafa slegið í gegn hjá okkur og við höldum því áfram með þau,“
sagði Bergdís að lokum.
Frekari upplýsingar um Pop Up seðilinn og námskeiðin má finna inni á heimasíðu Apóteksins.
Myndir: Sigurjón Ragnar
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanTímamót fyrir íslenska barþjóna með nýjum samstarfssamningi
-
Kokkalandsliðið3 dagar síðanNýr þjálfari kokkalandsliðsins, Georg Arnar leiðir liðið til Lúxemborgar 2026
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun8 klukkustundir síðanÍsland tók yfir eldhúsið á VOX þegar Sævar Lárusson og Rúrik mættu til leiks
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanMatarmarkaður Íslands í Hörpu um helgina, fjölbreyttur markaður fyrir veisluborðið og jólagjafir
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanEr þetta besta jólatréð í bænum, á bragðið? – Vídeó
-
Keppni3 dagar síðanWoodford Reserve Old Fashioned Week haldin í fyrsta sinn á Íslandi – Myndir
-
Markaðurinn4 dagar síðanOpnunartími Innnes um jólahátíðina – Innnes opening hours during the Christmas holidays
-
Markaðurinn1 dagur síðanHættulega góðar ostakökukúlur með Biscoff og hvítu súkkulaði







