Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Sbarro opnar veitingastað á Keflavíkurflugvelli
Veitingastaðurinn Sbarro hefur opnað veitingarými á Keflavíkurflugvelli. Um er að ræða svokallað pop-up rekstrarrými á verslunar- og veitingasvæði sem verður starfrækt tímabundið á flugvellinum. Boðið verður upp á úrval af nýbökuðum pizzum og pastaréttum ásamt sérstökum morgunverðarréttum.
Isavia auglýsti nýverið laus svokölluð pop-up rekstrarrými í leit að aðilum til að reka veitingasölu í suðurbyggingu Keflavíkurflugvallar. Rýmið er staðsett á biðsvæði eftir landamæri fyrir farþega á leið til Norður-Ameríku og Bretlands sem dæmi. Stór hluti eru tengifarþegar sem dvelja að meðaltali um klukkustund í flugstöðinni og var því lögð rík áhersla á afgreiðsluhraða, þekkta vöru og gæði í vali á veitingaaðila.
„Opnun Sbarro hefur farið fram úr væntingum og við upplifum mikla ánægju viðskiptavina með veitingastaðinn.
Við erum að undirbúa okkur fyrir eitt stærsta sumarið okkar á Keflavíkurflugvelli með mjög stórum álagspunktum á þessu svæði og því passar Sbarro einstaklega vel inn í veitingaflóruna. Þekkt vara, góð gæði og mikill hraði.“
Segir Gunnhildur Erla Vilbergsdóttir, deildastjóri verslana og veitinga hjá Isavia.
Farþegafjöldi hefur aukist mikið á síðustu mánuðum en Keflavíkurflugvöllur er einn af fáum flugvöllum heims sem hafa náð fullri endurheimt farþega eftir heimsfaraldur. Farþegaspá Isavia gerir ráð fyrir að 7,8 milljón farþega fari um Keflavíkurflugvöll árið 2023 sem yrði þriðji mesti fjöldi farþega um völlinn á einu ári frá upphafi.
Sbarro veitingastaðurinn verður til eins árs á fyrstu hæð í suðurbyggingu Keflavíkurflugvallar og mun þjónusta farþega sem eru á leið frá landa utan Schengen-svæðisins. Sbarro er einnig með útibú í 10-11 í komusal Keflavíkurflugvallar.
Mynd: Isavia
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanNotað Og Nýtt – Facebook hópur til að selja/kaupa notuð eða ný tæki
-
Frétt3 dagar síðanUPPFÆRT: Vagninn fundinn! Matarvagni stolið á meðan eigendur tóku á móti nýfæddri dóttur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanNýr kafli í miðborginni, Gamla Reykjavík tekin til starfa
-
Markaðurinn6 dagar síðanSegðu skilið við viðbrenndan grjónagraut í eitt skipti fyrir öll og prófaðu þessa aðferð
-
Keppni2 dagar síðanDublin Meets Reykjavík: Tíu barþjónar mætast í úrslitum í kvöld – Sjáðu myndirnar frá undankeppninni
-
Keppni7 dagar síðanNational Fish & Chip Awards: Íslenskur sigur við Mývatn vekur athygli
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 dagar síðanEldhús í ofurkeyrslu: 1.000 starfsmenn umbreyta Mercedes-Benz Stadium á innan við 18 klukkustundum
-
Markaðurinn7 dagar síðanHefur þú smakkað svart pepperoni?







