Frétt
Vilja að Samkeppniseftirlitið skoði samning borgarinnar við Hlemm Mathöll
Félag atvinnurekenda hefur sent Samkeppniseftirlitinu erindi, í framhaldi af kvörtunum nokkurra félagsmanna, og farið fram á að stofnunin taki til skoðunar samning Reykjavíkurborgar við rekstraraðila Hlemms Mathallar ehf., með tilliti til þess hvort hann feli í sér opinberan styrk sem raski samkeppni á markaði.
Í erindi FA er rifjað upp að þegar auglýst var eftir rekstraraðila fyrir veitinga- og matarmarkað á Hlemmi árið 2015 var tekið fram í auglýsingu að samið yrði „nánar um leigu fyrir húsið á grundvelli markaðsleigu á nærliggjandi svæði og mögulegan kostnað við breytingar á húsnæðinu.“
Fram hefur komið að áætlaður kostnaður borgarinnar við breytingar á húsnæðinu var í upphafi rúmlega 107 milljónir, en heildarkostnaðurinn endaði í rúmlega 308 milljónum. Þá hafi leiguverð húsnæðisins samkvæmt samningi í febrúar 2016 verið kr. 1.012.000 á mánuði, en viðauki hafi verið gerður við samninginn í maí 2017 þar sem leigan var hækkuð upp í kr. 1.143.179 á mánuði, vegna framkvæmda að ósk leigutaka. Miðað við verðlag í október 2018 er leigan kr. 1.209.254 á mánuði eða kr. 14.511.049 á ársgrundvelli, samkvæmt upplýsingum frá Reykjavíkurborg. Samkvæmt leigusamningnum er hið leigða húsnæði 529 fm og leiguverð á fermetra því tæpar 2.300 krónur.
Undir markaðsleigu og stendur ekki undir kostnaði við framkvæmdirnar
„FA er talsmaður jafnt fyrirtækja í veitingarekstri og félaga sem leigja út húsnæði til veitingastaða. Samkvæmt þeim upplýsingum sem FA hefur aflað sér er markaðsleiga í nágrenni mathallarinnar að jafnaði um þreföld sú fjárhæð sem leigusamningur um mathöllina kveður á um. Virðist rekstraraðili mathallarinnar þannig fá húsnæðið til leigu á þriðjungi markaðsleigu, þvert á þau áform sem fram komu í auglýsingu borgarinnar frá 12. júní 2015, auk heimildar til framleigu,“
segir í erindi FA til Samkeppniseftirlitsins.
„Þá er ljóst að hið umsamda leiguverð getur ekki með nokkrum hætti staðið undir kostnaði borgarinnar við framangreindar framkvæmdir sem námu um 308 milljónum króna og munu hafa verið kostaðar með lánsfé. Óhætt mun að fullyrða að ekkert leigufélag á almennum markaði hefði getað leyft sér slíkan framúrakstur í kostnaði vegna framkvæmda, a.m.k. ekki án þess að taka upp leigusamninga. Er það mat félagsins að leigusamningur Reykjavíkurborgar við Hlemm – Mathöll ehf. feli í sér opinberan styrk við einkaaðila í samkeppnisrekstri sem raski samkeppni á markaði. Ekkert bendir til að eðli rekstrarins sé frábrugðið rekstri annarra mathalla eða matartorga með þeim hætti að hann verðskuldi sérstaka fyrirgreiðslu á kostnað skattgreiðenda.“
Samkvæmt samkeppnislögum er það hlutverk Samkeppniseftirlitsins að gæta þess að aðgerðir opinberra aðila takmarki ekki samkeppni og benda stjórnvöldum á leiðir til þess að gera samkeppni virkari og auðvelda aðgang nýrra samkeppnisaðila að markaði. FA fer þess á leit við Samkeppniseftirlitið að taka til skoðunar hvort leigusamningur Reykjavíkurborgar við rekstraraðila Hlemms Mathallar ehf. raski samkeppni. Stofnunin beini eftir atvikum tilmælum til borgarinnar um úrbætur.
Erindi FA til Samkeppniseftirlitsins.
Mynd: atvinnurekendur.is
![](https://veitingageirinn.is/wp-content/uploads/2018/02/veitingageirinn.png)
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðan
Saga barónanna lifir – Veitingahúsið Hornið heldur upp á 46 ára afmæli
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðan
Viðskiptavinir okkar eiga skilið að hafa valkost: Segir Sigurður um ákvörðun MooGoo að vera opinn allt árið
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðan
Ný bylgja í vínheiminum – Fyrsta áfengislausa vínverslunin opnar í hjarta vínborgarinnar Bordeaux
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðan
Hvað er Heitast á BWW 2025? Sóley Björk og fremstu vínsérfræðingar heims afhjúpa leyndardóma Spænskra vína
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðan
Súkkulaðið sem fór á flug á TikTok – Hvað er svona sérstakt við PortaNOIR?
-
Frétt2 dagar síðan
Fuglaflensa veldur eggjaskorti: Veitingastaðir og bakarí í vanda
-
Markaðurinn3 dagar síðan
Rósasalat – Salatið sem fær diskinn til að blómstra – Uppskriftir með rósasalati
-
Keppni3 dagar síðan
Þessir keppendur komust áfram í úrslitakeppni Tipsý og Bulleit