Uppskriftir
Plokkfiskur að hætti Úlfars
Úlfar Eysteinsson matreiðslumeistari deilir hér með lesendum veitingageirans frægu plokkfisk uppskriftinni sem hann hefur afgreitt í tugi ára á veitingastað sínum Þrír Frakkar.
Hráefni
- 900 gr þorskflök
- 100–200 g kartöflur
- smjörbolla eða sósuþykkni
- 1 stk. meðalstór laukur
- 1/2 lítri mjólk
- 1 tsk. karrí
- salt
- 2 msk. pipar
- 2 msk. kalt smjör
Aðferð
Sjóðið kartöflurnar, afhýðið og skerið í bita. Roð- og beinhreinsið þorskflökin, skerið þau í bita og sjóðið; látið suðuna koma upp og slökkvið síðan undir hellunni og látið standa á meðan sósan er útbúin, í um 10 mín. Útbúið smjörbolluna. Athugið að í staðin fyrir þorsk má nota ýsu eða lúðu.
Afhýðið og saxið lauk og setjið í pott ásamt mjólk, karríi og salti. Hitið að suðu og jafnið síðan með smjörbollu eða sósuþykkni. Takið hluta af sósunni frá en bætið fiskinum út í sósuna í pottinum ásamt soðnum kartöflum og hrærið gætilega saman við.
Ef plokkfiskurinn er of þurr má bæta því sem tekið var frá af sósunni út í. Kryddið með pipar eftir smekk, sumir vilja mikinn pipar en aðrir minna, og setjið svo kalt smjör út í til að fá mýkri áferð.
Plokkfiskinn má líka gratínera í ofni með því að setja hann í smurt eldfast mót og setja hollandaise- eða béarnaisesósu og rifinn ost yfir. Uppskrift af béarnaisesósu er hér. Bakið réttinn í ofni við 200°C, í um 3 mín. eða þar til hann verður gullinbrúnn.
Höfundur: Úlfar Eysteinsson matreiðslumeistari
Mynd: 3Frakkar.com
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanArnór Ingi stefnir hátt með Laut – opnar fyrir kvöldverð á morgun
-
Markaðurinn7 dagar síðanLaufey og Collab vinna alþjóðleg verðlaun fyrir bestu markaðsherferðina
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 dagar síðanFullt hús og mikil stemning á afmælishátíð Café Riis
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanEin lélegasta vínuppskera í þrjá áratugi
-
Markaðurinn7 dagar síðanBeittir Hnífar sameinast nýju fyrirtæki – Glóðin veitingavörur tekur til starfa
-
Markaðurinn7 dagar síðanKomið víða við í heimsókn KAI til Íslands
-
Markaðurinn3 dagar síðanSpennandi starf fyrir yfirmatreiðslumann í Stykkishólmi
-
Markaðurinn4 dagar síðanBakarameistari Bakels heimsækir Ísland og heldur bakaranámskeið



