Veitingarýni
Páskaegg Veitingageirans í ár – Sannkallað augnakonfekt
Það er alltaf jafn gaman að skoða páskaeggjaúrvalið. Skiptar skoðanir eru um hvaða egg eru best og sitt sýnist hverjum. Í mörg ár hafa verksmiðjuframleiddu eggin orðið fyrir valinu hjá okkur en síðustu ár hafa handunnin páskaegg heillað.
Í ár var páskaegg frá Fríðu fyrir valinu, en Fríða Chocolate er kaffihús í eigu listamannsins Fríðu Gylfadóttur. Þar ber hún fram eðal kaffi og handgerða súkkulaðimola. Kaffihúsið er staðsett við Túngötu 40 á Siglufirði.
Bjarstýnin var í hámarki þegar fréttamaður rölti inn á kaffihúsið rétt fyrir páska til að kaupa egg með 80% súkkulaði.
„Það er allt uppselt!“
Sagði afgreiðslustúlkan, en benti mér á að það ætti þó eftir að steypa aðra tegund í nokkur mót. Náði ég þannig að tryggja mér tvílitt egg með hvítu og brúnu súkkulaði.
Páskaeggið kostaði 3.800 krónur og var hverrar krónu virði.
Inni í egginu voru fjórir handgerðir konfektmolar sem kitluðu bragðlaukana og eggið sjálft var einstaklega bragðgott og gladdi jafnframt augað.
Málshátturinn innihélt svo þetta ágæta viskukorn:
„Success is a journey not a destination“
Myndir: veitingageirinn.is / Fríða
-
Bocuse d´Or1 dagur síðanBein útsending frá Marseille þar sem Snædís keppir fyrir Íslands hönd
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanMatarmarkaður Íslands fer fram í Hörpu um helgina
-
Bocuse d´Or3 dagar síðanÍslenska Bocuse d’Or liðið klárt í slaginn í Marseille
-
Bocuse d´Or5 klukkustundir síðanSnædís komst áfram í úrslit Bocuse d’Or
-
Bocuse d´Or9 klukkustundir síðanMyndasyrpa. Snædís skilar réttunum til dómara
-
Frétt4 dagar síðanRené Redzepi stígur til hliðar frá Noma eftir ásakanir um ofbeldi gegn starfsfólki
-
Bocuse d´Or14 klukkustundir síðanFréttavaktin: Snædís keppir í Bocuse d’Or
-
Markaðurinn7 dagar síðanKvöld sem koníaksunnendur bíða eftir








