Freisting
Ofurkokkurinn Gordon Ramsey í fjárhagsvandræðum

Ofurkokkurinn, Íslandsvinurinn og strigakjafturinn Gordon Ramsey er kominn í veruleg fjárhagsvandræði. Samkvæmt frétt í Financial Times hefur Ramsey brotið gegn skilmálum fyrir rúmlega 10 milljón punda eða um 1,7 milljarða kr. rekstrarláni frá Royal Bank of Scotland (RBS).
Þetta þýðir að RBS getur krafist þess að lánið verði strax gert upp í heild sinni en það er með veði í núverandi og framtíðareignum Ramseys.
Fyrr í vetur yfirtók RBS lán sem Kaupþing hafði veitt Ramsey upp á 4,2 milljónir punda eða um 680 milljónir kr. þegar Kaupþing komst í þrot í Bretlandi.
Ramsey er nú í samningaviðræðum við RBS um fjármál sín. Hann rekur sælkeraveitingahús víða um heiminn og árið 2007 nam velta þeirra tæplega 42 milljónum punda eða um 6,8 milljörðum kr..
Eignarhaldsfélag það sem Ramsey á og rekur veitingahús hans er talið 67 milljón punda virði. Ramsey á 67% af því en tengdafaðir hans, Chris Hutcheson er skrifaður fyrir 33% hlut.
Ramsey er talinn einn besti kokkur í heimi og er hann í þriðja sæti hvað Michelin-stjörnur varðar en hann er handhafi að 14 slíkum stjörnum.
Af vef Visir.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanMyndband: Kokkar tóku á móti gestum í sal á meðan þjónar fóru í eldhúsið
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanMakona er nýr veitingastaður við Borgartún 26: Myndir frá opnunarhátíð staðarins
-
Vín, drykkir og keppni7 dagar síðanStemningsmyndir frá Kalda bar þegar tilnefningar BCA voru kynntar
-
Frétt7 dagar síðanViðvörun til neytenda vegna grænmetisrétta í stórumbúðum
-
Frétt6 dagar síðanListería greind í grænmetisbollum frá Grími Kokki
-
Nemendur & nemakeppni4 dagar síðanHótel og matvælaskólinn endurtekur Meistaradaginn með nýrri áherslu
-
Markaðurinn3 dagar síðanMánaðartilboð febrúar 2026: kjöt fyrir bolludag, sprengidag og öskudag
-
Food & fun2 dagar síðanMatarhátíðin Food & Fun fer fram í 23. sinn




