Smári Valtýr Sæbjörnsson
Nýr bjór frá The Brothers Brewery | Bjór til heiðurs sjómönnum Íslands
The Brothers Brewery sem er eitt minnsta brugghús Íslands og staðsett er í Vestmannaeyjum mun setja í sölu á veitingastaðnum Einsi Kaldi bjórinn Togarinn um sjómannadagshelgina. Aldrei áður hefur verið bruggaður sérstakur bjór tileinkaður sjómönnum Íslands í tilefni sjómannadagshelgarinnar, að því er fram kemur í fréttatilkynningu.
The Brothers Brewery fékk starfsleyfi í upphafi ársins 2016 en upphaf þess má rekja til ársins 2012 þegar stofnendur þess byrjuðu að ræða það sín á milli að brugga sinn eigin bjór. Fyrst um sinn átti brugguninn hjá stofnendum að vera eingöngu áhugamál en fljótlega var farið að ræða það og skoða af alvöru að opna litla bruggverksmiðju í Vestmannaeyjum. Í dag eru bjórar The Brothers Brewery eingöngu seldir á veitingastaðnum Einsa Kalda í Vestmannaeyjum en á næstu vikum kemur fyrsti bjórinn til sölu á veitingastað í miðborg Reykjavíkur.
Bjórinn sem The Brothers Brewery bruggar núna í tilefni sjómannadagsins hefur fengið nafnið Togarinn. Togarinn er viðurnefni á sjómanninum Ragnari Þór Jóhannssyni sjómanni á Kap VE en Ragnar er þekktastur sem Raggi Togari í Vestmannaeyjum. Ragnar Þór byrjaði sinn sjómannsferil árið 2004 þá sem háseti á Narfa VE. Ragnar hefur frá þeim tíma róið á mörgum bátum og er ein af þessum hetjum hafsins sem elskar að vera til sjós og því auðvelt að heiðra hann með nafngift á þessum fyrsta sjómannabjór Íslands.
Vídeó
Togarinn er af tegundinni Imperial Stout og er áfengismagnið í honum yfir 10%. Togarinn er dökkur bjór og var reynt við bruggun hans reynt að hafa hann eins dökkan og hægt var. Togarinn hefur nú gerjast í nokkrar vikur með eikarspíral í sér sem lágu áður í nokkrar vikur í eðal vískí. Eikarspíralinn flytur því bragð og ilm af viskítónum yfir í Togarann. Ragnar Þór eða Raggi Togari var viðstattur þegar bjórinn var bruggaður og því er ekki laust við að handbragð sjómannsins muni sjást þegar Togarinn fer í glas.
Bjórinn verður til í mjög litlu magni eða um 30 lítrum og var honum meðal annars tappað á 12 númeraðar 0,75 lítra flöskur. The Brothers Brewery hefur ákveðið að gefa eina flösku til Sjómannadagsráðs sem mun bjóða hana upp á sjómannadansleik sínum í Vestmannaeyjum 5.júní næstkomandi til styrktar góðu málefni. Gunnar Júl Art hannaði umbúðir Togarans og skarta þær mynd af Ragnari Þór og verða flöskurnar númeraðar sérstaklega.
Í tilkynningunni segir að The Brothers Brewery hafa ákveðið að heiðra sjómenn og brugga sérstakan sjómannadagsbjór á hverju ári og er strax farið að huga að því að velja þann sjómann sem fær þann heiður að bera nafn næsta sjómannadagsbjórs.
Myndir: facebook / The Brothers Brewery
-
Keppni17 klukkustundir síðanFimm tryggja sér sæti í úrslitum Kokk ársins eftir harða forkeppni
-
Keppni3 dagar síðanGull og silfur til Íslands á Norðurlandamótinu í matreiðslu – Myndir
-
Keppni5 klukkustundir síðanKosning hafin, hver hlýtur titilinn Kokkur ársins 2026?
-
Frétt3 dagar síðanSvangur þjófur braust inn í Almars bakarí í Hveragerði
-
Keppni4 dagar síðanÍsland átti öfluga fulltrúa á fyrstu Green Chef International keppninni
-
Markaðurinn3 dagar síðanPáskatilboð sem þú vilt ekki missa af
-
Markaðurinn3 dagar síðanGarri hlýtur hæstu einkunn í BRCGS gæðavottun
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanLokahóf Kokks ársins 2026









