Vertu memm

Freisting

Ný norræn matargerð á matseðlinum

Birting:

þann


Norrænu matvælaráðherrarnir 

Michael Björklund Álandseyjum, Anne Sofia Hardenberg frá Grænlandi og Leif Sørensen frá Færeyjum voru skipuð sendiherrar nýrrar norrænnar matargerðar á norrænum ráðherrafundi í Björneborg.

Hans Christian Schmidt matvælaráðherra Danmerkur sagði við þetta tilefni:

Ný norræn matargerð er almenn viðurkenning á upprunalegum gildum, – þ.e.a.s. miklu meira en tískubóla meðal matreiðslumanna í fremstu röð.

Við eigum sérstaklega að verðlauna gæðavörur. Á Norðurlöndum eru langir bjartir sumardagar – og vetur sem einungis harðgerustu tegundir lifa af.

Sendiherrarnir þrír bætast við þá ellefu sem þegar hafa verið skipaðir. Verkefni þeirra er að miðla þekkingu og vekja athygli á verkefni um nýja norræna matargerð. Sendiherrarnir hafa allir staðið fyrir átaksverkefnum til að koma norrænni matargerð og menningu á framfæri.

Sirkka-Liisa Anttila hrósaði einnig verkefninu, sem hún lýsti sem angan bjartra sumardaga:

Matargerð er menning og við erum loksins farin að viðurkenna það á Norðurlöndum. Við eigum gott hráefni sem hægt er að nota í framandi rétti. Þetta snýst um að nýta norrænan styrk, einnig á þessu sviði.

Norrænu matvælaráðherrarnir ásamt landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherrunum urðu sammála um að veita ný verðlaun fyrir Nýja norræna matargerð, alls 100.000 danskar krónur. Verðlaunin má veita einstaklingi eða samtökum sem unnið hafa einstakt starf til að kynna og þróa norræna matargerð og matarmenningu. Verðlaunin verða veitt í fyrsta sinn árið 2007 á viðburð sem Norræna ráðherranefndin stendur fyrir og kallast Ný norræn matargerð.

Verkefnið gengur sérstaklega vel. Meðal annars hefur verið komið á nánu samstarfi við Norrænu nýsköpunarmiðstöðina sem styrkti 6 nýsköpunarverkefni á sviði matargerðar tímabilinu 2007-2009. Alls hefur 12 milljónum danskra króna verið veitt til verkefnisins.

Nánar um nýja norræna matargerð: www.norden.org/jord_skog/nordisk_mat/sk

Matvælasamstarf á Norðurlöndum: www.norden.org/livsm/sk

Mynd: Esa Kyyrö | [email protected]

 

Auglýsingapláss

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Click to comment

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið