KM
Norðurlandakeppnin í matreiðslu á næsta leiti
|
|
Nú um þessar mundir eru matreiðslumennirnir þeir Jóhannes Steinn Jóhannesson, Bjarni Siguróli, Ragnar Ómarsson og Ólafur Ágúst farstjóri í danmörku í Herning Fair Center á sýningunni Foodexpo, en Jóhannes og Bjarni Siguróli koma til með að keppa fyrir hönd íslands um titilinn Matreiðslumaður Norðurlanda.
Ragnar Ómarsson matreiðslumaður er dómari í keppninni, en það er 1 dómari frá hverju landi sem keppir.
Sjálf keppnin Matreiðslumaður Norðurlanda verður á haldin á miðvikudaginn 27. janúar næstkomandi. Í samtali við fréttstofu sagði Ólafur Ágúst farastjóri eftirfarandi:
„Undirbúningur stendur sem hæst fyrir Norðurlandakeppnina. Við flugum til Kaupmannahafnar í fyrradag og keyrðum upp til Billund þar sem við gistum á Hótel Legoland fyrstu dagana og í vægast sagt góðu yfirlæti! Róandi umhverfi innan um alla Lego-kubbana og nægur tími til að einbeita sér að alvörunni.
Í gær fórum við á sýninguna og fylgdumst með keppninni Matreiðslumaður ársins í Danmörku. Það var mjög skemmtilegt að fylgjast með þeim 10 sem kepptu til úrslita og keppnin var mjög hörð. Alltaf gaman að fylgjast með uppátækjasömum Dönunum. Strákarnir „okkar“ notuðu tækifærið og njósnuðu um aðstöðuna á keppnisstað og reyndu að koma sér sem mest inní hlutina fyrir stóra daginn á miðvikudaginn. Óhætt er að segja að spenningur er kominn í strákanna, lítið um svefn og mikið um fundarhöld, bollaleggingar og diskússjón.
En skemmst er frá því að segja að keppnin um Matreiðslumann ársins í Danmerkur fór þannig:
1. Tommy Friis frá Molskroen
2. Brian Mark Hansen frá Søllerød Kro
3. Michael Pedersen frá Villa Vest
Það vakti athygli okkar drengjanna að Allan Poulsen, sem hefur sigrað þessa keppni áður, átti ekki sinn besta dag og lenti í því fimmta.
En eins og fyrr segir þá er Norðurlandakeppnin í matreiðslu á miðvikudaginn og undirbúningur á lokastigi, sagði Ólafur að lokum.
Fleira tengt efni:
23.12.2009 – Nýtt fyrirkomulag á keppninni Matreiðslumaður Norðurlanda
Mynd: Matthías
-
Markaðurinn2 dagar síðanRational í 50 ár og árið 2025 metár á Íslandi
-
Nemendur & nemakeppni6 dagar síðanHótel og matvælaskólinn endurtekur Meistaradaginn með nýrri áherslu
-
Food & fun4 dagar síðanMatarhátíðin Food & Fun fer fram í 23. sinn
-
Markaðurinn5 dagar síðanMánaðartilboð febrúar 2026: kjöt fyrir bolludag, sprengidag og öskudag
-
Markaðurinn3 dagar síðanMyndir: Peter De Wandel heimsótti Garra og kynnti nýjungar frá Ardo
-
Markaðurinn3 dagar síðanBragðmikil taco súpa með cheddar og sýrðum rjóma
-
Markaðurinn2 dagar síðanMinnkum matarsóun
-
Vín, drykkir og keppni2 dagar síðanÆtti svona saké viðburður líka heima á Íslandi?





