Markaðurinn
Nikka From The Barrel fyrstu verðlaun
Hið virta veftímarit Drinks International tekur reglulega fyrir hina ýmsu áfengu drykki og veitir verðlaun í hinum ýmsustu flokkum. Í flokknum ,,World Whiskies” fékk hið frábæra, japanska viskí, Nikka From The Barrel fyrstu verðlaun þó keppinautarnir væru engir aukvisar.
Þar var Nikka att saman við annað japanskt viskí, Yamazaki sem og Kavalan frá Taívan en í þessum flokki koma saman viskí frá öðrum löndum en Skotlandi, Írlandi og Bandaríkjunum. Eins og viskíunnendur vita þá eru japönsk viskí flest hver frábær, virkilega vandað til verka og standa kollegum frá t.d. Skotlandi síst að baki. Þau eru t.a.m. framleidd á sama hátt og skosk og það sem margir gera sér ekki grein fyrir er að Japanir hafa staðið í viskíframleiðslu í næstum heila öld.
Nikka From The Barrel er blanda frá Nikka framleiðandanum sem á tvær verksmiðjur, aðra í Yoichi í norður Japan og hina í Miyagikyo í miðri Japan. Í Yoichi eru eingöngu framleiddir léttreyktir einmöltungar en í Miyagikyo eru framleiddir óreyktir einmöltungar í hefðbundnum potteimurum auk kornviskía úr ,,continuous stills” eða síeimurum. Í Nikka From The Barrel koma saman þessar tegundir; Yoichi og Miyagikyo einmöltungar í bland við kornviskí úr síeimurum og er þeim listavel blandað saman eins og Japönum er von og vísa.
Nikka From The Barrel er átappað nokkuð sterkt eða 51.4% og því nýtur viskíð sín til fulls. Mjög aðgengilegt beint úr flöskunni, en um að gera að leyfa því að slaka ögn á og opna sig með því að bæta örlitlu af vatni út í glasið. Þarna kemur fram mikill ávaxtakeimur, eik, krydd, vanilla og það er einnig nokkuð blómlegt/grösugt.
Það er virkilega viðráðanlegt og höfðar til allra þeirra sem hafa áhuga á þessum margslungna drykk, hvort sem er drukkið eitt og sér eða í hverju því hanastéli sem inniheldur létt og ávaxtakennd viskí.
Geysilega glúrið viskí og það á góðu verði. Það er mjög erfitt að slá Nikka við hvað þessa ofantöldu kosti varðar og er það því vel að titlinum komið sem sigurvegari Drinks International.
Nikka from the Barrel
Verð: 7.999 kr
Fæst í Vínbúð
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanTvö stór afmæli hjá Café Riis á Hólmavík
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 dagar síðanFimm matreiðslumeistarar tilnefndir til Íslensku menntaverðlaunanna fyrir námsefnið Matreiðslu
-
Markaðurinn7 dagar síðanUm 60 gestir á bransahittingi Ó.J&K – ISAM á Akureyri
-
Vín, drykkir og keppni7 dagar síðanPítan í Skipholti fær sinn eigin bjór frá RVK Bruggfélagi
-
Frétt6 dagar síðanJökull Alexander Egilsson tekur við rekstri tíu hótela um land allt
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanÞjófar stálu 30.000 vínflöskum að verðmæti 700 milljóna króna
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun15 klukkustundir síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Markaðurinn2 dagar síðanKjarnafæði býður allt að 49% afslátt af kjötvörum




