Freisting
Met í jólaverslun með mat og drykk
Landsmenn gerðu vel við sig í mat og drykk í jólamánuðinum og vörðu meira til veislufanga nú en síðustu árin. Velta í dagvöruverslun var 4,4% meiri í desember miðað við sama mánuð í fyrra, á föstu verðlagi, en þá á sér stað leiðrétting á verðlaginu með því að taka tillit til verðbreytinga sem hafa orðið á tímabilinu.
Vísitalan dagvöruverslunar hefur ekki verið hærri frá því að mælingar hófust í lok árs 2001.
Ef miðað er við breytilegt verðlag, en þá er miðað við þá krónutölu sem er í gangi hvert sinn sem mælt er óháð öllum öðrum áhrifum, var veltan í dagvöruverslun 13,5% meiri í desember 2006 en í desember 2005.
Sala á áfengi jókst um 5,6% milli ára á föstu verðlagi og hefur vísitala þess ekki verið hærri frá upphafi mælinganna 2001, eða 218,5 stig á föstu verðlagi, samkvæmt upplýsingum frá Rannsóknarsetri verslunarinnar.
Undanfarna mánuði hefur velta í dagvöruverslun heldur dregist saman milli mánaða og tiltölulega hógværar hækkanir hafa verið í samanburði á milli ára. Þetta hefur verið túlkað þannig að þensla fari minnkandi og einkaneysla að dragast saman. Líklegt má telja að sú þróun haldi áfram og óvíst að veisluhöld um jólin hafi nokkur áhrif á þá þróun,“ samkvæmt frétt frá Rannsóknarsetri verslunarinnar.
Greint frá á Mbl.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðan„Sorglegt að þetta þurfi að fara á samfélagsmiðla til að borgin vakni“
-
Starfsmannavelta7 dagar síðanMichelin-hjónin hætta skyndilega á À L’aise tveimur mánuðum eftir nýja Michelin-stjörnu
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanSkráning hafin í Negroni vikuna 2026
-
Frétt5 dagar síðanWilhelm Wessman fallinn frá
-
Markaðurinn5 dagar síðanSólmyrkvapylsur frá SS í takmörkuðu upplagi
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanFærri brugghús loka í Bretlandi
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanHvers vegna eru franskar ekki á matseðli Costco?
-
Frétt4 dagar síðanVarað við skordýrum í dilli


