Frétt
Matvælastofnun varar við kræklingatínslu vegna eitraðra þörunga
Eiturþörungar hafa ár eftir ár verið viðvarandi í sjó í Hvalfirði yfir sumartímann. Maí og júní hafa verið sólríkir og er ástæða til að ætla að eiturþörungar í sjó dafni víða vel. Því varar Matvælastofnun almenning við því að tína og borða krækling í Hvalfirði og öðrum vinsælum stöðum til kræklingatínslu við landið.
Neytendur þurfa ekki að varast krækling (bláskel) sem ræktaður er hérlendis og er á markaði í verslunum og veitingahúsum. taka reglulega sýni af skelkjöti og sjó til að fylgjast með magni eitraðra þörunga í sjó og hvort skelkjötið innihaldi þörungaeitur. Ræktun og markaðsetning er einnig undir eftirliti Mast og heilbrigðiseftirlits.
Niðurstöður vöktunar á eiturþörungum í sjó og þörungaeitri í skel á ræktunarsvæðum kræklings má nálgast hér: Þörungaeitur í skelfiski | Matvælastofnun
Svifþörungar eru undirstaða fæðukeðju hafsins, en sumar tegundir mynda þörungaeitur sem er hættulegt mönnum og dýrum. Vöxtur og eiturmyndun í þörungum er ekki fyrirsjáanleg, því getur hættan sprottið upp á gróðurtímabili þörunga, frá mars mánuði og fram á vetur. Skelfiskurinn sem étur eiturþörunga safnar í sig eitrinu án þess að það hafi áhrif á hann sjálfan. Eituráhrifanna gætir aftur á móti hjá þeim sem neyta skelfisks sem hefur safnað upp þörungaeitri.
Upplýsingar um eiturþörunga og þörungaeitur má nálgast á vef Hafrannsóknastofnunar Um þörungaeitranir / Hafrannsóknastofnun
Mynd: úr safni
-
Markaðurinn6 dagar síðanEvogro ræktunarskápur hámarkar ferskleikann – nýjung hjá BVT
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanHákon Bragi seldi hlut sinn í Fæby og tekur við nýju starfi hjá ISS
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanÍslenskur kokkur vekur athygli í Litháen
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanOmegn & Venner taka yfir SKÁL! við Njálsgötu
-
Markaðurinn6 dagar síðanBrauð mánaðarins með stökkri og fallegri áferð
-
Markaðurinn5 dagar síðanÞrír heimar viskís – frá Skotlandi til Japan og Taívan
-
Markaðurinn6 dagar síðanOktóbertilboð hjá Danól – kjötbollur og fjölbreytt meðlæti
-
Frétt2 dagar síðanMilljörðum varið í að bjarga krám og lífga upp á verslunargötur




